Ævisafn I hækkaði um 21,8% á árinu 2012 eða 16,6% umfram verðbólgu sem er hæsta raunávöxtun sjóðsins frá upphafi. Hækkun á erlendum eignum, veiking krónunnar og uppgjör sjóðsins við Glitni eru helstu áhrifavaldar.
Ávöxtun Ævisafns II var 16,7% á árinu 2012 eða 11,7% umfram verðbólgu. Hækkun erlendra eigna vegur þungt auk þess sem veiking krónunnar og fleira spilar inn í.
Ævisafn III hækkaði um 10,6% á árinu 2012 sem var 5,8% umfram verðbólgu. Hækkun erlendra eigna, veiking krónunnar og hækkun verðtryggðra skuldabréfa skýra að mestu ávöxtun safnsins.
Innlánasafn hækkaði um 6,5% á árinu 2012 sem var 1,9% umfram verðbólgu. Verðbótaþáttur skýrir að stærstum hluta hækkun ársins.
Ríkissafn langt hækkaði um 6,4% á árinu sem var 1,8% umfram verðbólgu. Verðbótaþáttur og viðvarandi skortur á fjárfestingakostum skýra að stærstum hluta hækkunina á tímabilinu.
Ríkissafn stutt hækkaði um 4,2% á árinu, mest vegna gengisbreytinga styttri ríkisskuldabréfa á markaði á árinu, þrátt fyrir stýrivaxtahækkanir. Ávöxtun stuttra ríkisskuldabréfa hefur verið í kringum 3,5% til 4,5% nafnávöxtun sem er í samræmi við ávöxtun safnsins.
| Safn | Gengi | Áv* |
|---|---|---|
| Innlánasafn | 1507,2 | 5,66 |
| Ríkissafn - Langt | 1592,3 | 4,45 |
| Ríkissafn - Stutt | 1248,8 | 5,32 |
| Samtryggingarsjóður | 3105,9 | 14,47 |
| Ævisafn I | 2611,4 | 20,86 |
| Ævisafn II | 3133,3 | 16 |
| Ævisafn III | 2465,4 | 9,71 |
*Nafnávöxtun sl. 1 ár
| Fastir | Breytilegir |
|---|---|
| 3,85% | 3,75% |