Almenni lífeyrissjóðurinn er öllum opinn en hann er jafnframt starfsgreinasjóður arkitekta, leiðsögumanna, lækna, hljómlistarmanna og tæknifræðinga. Lífeyrissjóðir þessara stétta hafa sameinast Almenna lífeyrissjóðnum og greiða félagar þeirra lágmarksiðgjöld í hann.
Opinn lífeyrissjóður
Almenni lífeyrissjóðurinn er opinn fyrir alla og hentar þeim sem geta valið lífeyrissjóð og vilja greiða viðbótariðgjöld til að auka ráðstöfunartekjur sínar á eftirlaunaárunum.
Almenni lífeyrissjóðurinn hentar sérstaklega vel fyrir sjálfstæða atvinnurekendur sem ekki greiða í neinn lífeyrissjóð og þá sem geta valið sér lífeyrissjóð.
Þeir sem verða að greiða í annan lífeyrissjóð skv. kjarasamningi eða ráðningarsamningi geta samt nýtt sér kosti Almenna lífeyrissjóðsins með því að greiða viðbótariðgjald í sjóðinn.
Sjóðfélagar í B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og öðrum lífeyrissjóðum sem ekki er greitt í af yfirvinnu geta t.d. greitt 4% framlag launþega af yfirvinnu í Almenna lífeyrissjóðinn.
Allir launþegar geta greitt 4% af heildarlaunum í Almenna lífeyrissjóðinn sem viðbótariðgjöld.
Sjóðfélagar
Þeir sem vilja gerast sjóðfélagar þurfa að skila skriflegri inntökubeiðni og felst í henni yfirlýsing um að þeir vilji hlíta samþykktum sjóðsins. Þeir, sem eiga inneign í séreignarsjóði eða réttindi í samtryggingarsjóði, teljast sjóðfélagar. Þeir sem njóta elli- eða örorkulífeyris úr sjóðnum teljast sjóðfélagar.
Aðild að sjóðnum fellur niður ef sjóðfélagi fær útborguð réttindi eða inneign í einu lagi eða þau flytjast samkvæmt samskiptareglum lífeyrissjóða í annan lífeyrissjóð.