03.02.2012
Almenni lífeyrissjóðurinn fagnar útgáfu skýrslu Úttektarnefndar lífeyrissjóða. Í skýrslunni er að finna úttekt á starfsemi lífeyrissjóða árin 2006-2010 og áhrif efnahagshrunsins á eignir sjóðanna. Skýrslan staðfestir í öllum aðalatriðum mat Almenna lífeyrissjóðsins á áhrifum efnahagshrunsins á eignir sjóðsins sem nú þegar hefur verið tekið tillit til í eignamati sjóðsins.
26.01.2012
Almenni lífeyrissjóðurinn hefur sent sjóðfélögum yfirlit sem sýna hreyfingar á tímabilinu 1. september til 31. desember 2011 og upplýsingar um lífeyrisréttindi og inneign í lok tímabilsins.
13.01.2012
Ríkissafn langt skilaði bestu ávöxtuninni árið 2011 en blönduð verðbréfasöfn skiluðu einnig ágætri ávöxtun.
30.12.2011
Lífeyrisgreiðslur í janúar verða greiddar sunnudaginn 1. janúar. Árið 2011 jukust lífeyrisgreiðslur um 24%. Aukagreiðslur úr séreignarsjóði skýra aukninguna.
28.12.2011
Fjármálaráðuneytið hefur birt upplýsingar um skattheimtu einstaklinga árið 2012.