02.02.2009
Yfirlit fyrir árið 2008
Almenni lífeyrissjóðurinn hefur sent sjóðfélögum yfirlit og fréttabréf með upplýsingum um afkomu sjóðsins á árinu 2008. Yfirlitið sýnir hreyfingar janúar til desember og upplýsingar um inneign og réttindi 31. desember 2008 og áætlaðar lífeyrisgreiðslur. Lífeyrisþegar fá sendar upplýsingar um greiddar lífeyrisgreiðslur á tímabilinu.
Mikilvægt er að fylgjast með því að launagreiðendur standi skil á iðgjöldum og bera launaseðla saman við yfirlit. Vanti einhverjar innborganir hafðu þá samband við launagreiðanda eða starfsfólk lífeyrissjóðsins.
Sjóðfélagar geta hvenær sem er sótt yfirlit í Netbanka með sambærilegum upplýsingum fyrir valið tímabil. Þeir sem fylgjast með í Netbankanum geta afpantað heimsendingu yfirlita og sparað þannig kostnað. Það er gert í Netbanka með því að velja stillingar og afþakka að fá send yfirlit.
Með yfirlitunum fylgir
fréttabréf með upplýsingum um afkomu á árinu 2008. Á forsíðu er sagt frá ávöxtun sjóðsins og helstu eignaflokka árið 2008. Í opnu er viðtal við Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóra sjóðsins en á baksíðu eru helstu kennitölur og almennar upplýsingar um sjóðinn.
<<Til baka