23.02.2009
Ársfundur 2009
Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins árið 2009 verður haldinn þriðjudaginn 10. mars 2009 á Grand hótel Reykjavík kl. 17:15.
Dagskrá.
1. Skýrsla stjórnar.
2. Ársreikningur 2008 og tryggingafræðilega athugun á fjárhag samtryggingarsjóðs.
3. Kynning á fjárfestingarstefnu Almenna lífeyrissjóðsins.
4. Tillögur um breytingar á samþykktum. Sjá fyrir neðan.
5. Kosning stjórnar.
6. Kosning endurskoðenda eða endurskoðunarfélags.
7. Ákvörðun um laun stjórnar.
8. Önnur mál.
Á ársfundi sjóðsins 2009 skal kjósa tvo aðalmenn og einn varamann í stjórn til þriggja ára. Á fundinum skal einnig kjósa einn stjórnarmann og einn varamann til eins árs í staðinn fyrir fulltrúa Íslandsbanka sem voru tilnefndir á ársfundi 2007 en hætta á ársfundi 2009.
Framboðum til stjórnar (aðalmenn) skal skila viku fyrir ársfund sjóðsins. Framboðsfrestur rennur út þann 3. mars 2009 kl. 24:00. Hægt er að senda inn framboð á netfangið almenni@almenni.is.
Á fundinum lýkur kjörtímabili eftirtalinna aðila:
Páll Á. Pálsson, var tilnefndur sem aðalmaður af Glitni 2007.
Hafsteinn Sæmundsson, var tilnefndur sem aðalmaður af Læknafélagi Íslands 2006.
Eiríkur Þorbjörnsson, var kosinn aðalmaður á ársfundi 2006.
Arna Harðardóttir, var tilnefnd sem varamaður af Glitni á ársfundi 2007 en tók við sem aðalmaður í október 2008.
Vilhelmína Haraldsdóttir , var tilnefnd sem varamaður á ársfundi 2006.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.
Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins.
Tillögur um breytingar á samþykktum.
Tillaga frá Ingvari Baldurssyni, tæknifræðingi.
Við grein 5.1 bætist eftirfarandi setning:
,,Stjórnarmaður má sitja í stjórn sjóðsins í allt að 12 ár.”
Bráðabirgðaákvæði.
,,Ákvæði um hámarksstjórnarsetu í grein 5.1. gildir frá 1. janúar 2003.”
<<Til baka