Beint í leiðarkerfi

Frétt

04.03.2009

Framboð til stjórnar

Á ársfundi Almenna lífeyrissjóðsins 2009, sem verður haldinn þriðjudaginn 10. mars, skal kjósa tvo aðalmenn og einn varamann í stjórn til þriggja ára. Á fundinum skal einnig kjósa einn stjórnarmann og einn varamann til eins árs í staðinn fyrir fulltrúa Íslandsbanka sem voru tilnefndir á ársfundi 2007 en hætta á ársfundi 2009.

Tilkynna skal framboð viku fyrir ársfund og hafa eftirfarandi gefið kost á sér í stjórn:
Andrés Magnússon, læknir
Atli Árnason, læknir
Eiríkur Þorbjörnsson, tæknifræðingur
Guðni Þór Gunnarsson, löggiltur endurskoðandi
Ingvar Baldursson, tæknifræðingur
Jón Óli Ólafsson, sérfræðingur í kerfisrekstri
Páll Á. Pálsson, tæknifræðingur
Oddur Ingimarsson, læknir
Vilhelmína Haraldsdóttir, læknir

Frambjóðendur munu kynna sig og stefnumál sín á ársfundinum.

<<Til baka