05.03.2009
Ársreikningur 2008
Almenni lífeyrissjóðurinn hefur birt ársreikning sjóðsins fyrir árið 2008. Helstu atriði í reikningnum eru eftirfarandi:
- Heildareignir Almenna lífeyrissjóðsins voru 83,7 milljarðar í árslok 2008 og minnkaði sjóðurinn um 9 milljarða eða um 9,7% á árinu.
- Iðgjöld til sjóðsins voru samtals 8,9 milljarðar og hækkuðu um 12,2% frá fyrra ári. Iðgjöldin skiptust í lágmarksiðgjöld 4,8 milljarða og viðbótariðgjöld 4,1 milljarð.
- Sjóðfélagar í árslok voru 30.371 og fjölgaði um 6,5%.
- Fall viðskiptabankanna hafði afgerandi áhrif á ávöxtun 2008. Hlutabréf og skuldabréf bankanna töpuðust en auk þess voru skuldabréf fyrirtækja lækkuð með varúðarafskriftum.
- Allar ávöxtunarleiðir skiluðu neikvæðri ávöxtun á bilinu -3,7% til -24,3%. Ævisafn IV lækkaði minnst eða um 3,7%.
- Verulegt tap var af gjaldeyrisvarnarsamningum eða 5,3 milljarðar. Samningarnir hafa verið að fullu gjaldfærðir hjá sjóðnum. Margir samtryggingarsjóðir reikna með að geta gert samningana upp miðað við skráða gengisvísitölu hjá Seðlabankanum 10. október og að geta gert samningana upp með því að skuldajafna bankabréfum á móti tapinu. Ávöxtun Almenna myndi batna nokkuð ef hann notaði sömu aðferð, mest hjá Ævisafni I sem myndi hækka um 7,7%.
- Áfallnar skuldbindingar tryggingadeildar voru 22,1% umfram eignir og því færast 2.251 milljónir úr eftirlaunadeild í tryggingadeildina. Það er svipuð tala og tryggingadeildin hagnaðist á árunum 2006 og 2007 og greidd var í eftirlaunadeildina.
- Örorku-, maka- og barnalífeyrir úr tryggingadeild mun ekki lækka þar sem eftirlaunadeild ábyrgist skuldbindingar tryggingadeildar.
- Áfallnar skuldbindingar lífeyrisdeildar, sem greiðir ellilífeyri, voru 21,3% umfram eignir. Stjórn sjóðsins leggur til á ársfundi að lífeyrisréttindi verði lækkuð um 10% samkvæmt tillögu tryggingafræðings.
- Almenni lífeyrissjóðurinn og forverar hans hafa aukið lífeyrisréttindi umfram verðbólgu um 23%-68% á síðustu 10 árum.
- Innlánasafn er ný ávöxtunarleið sem var kynnt í október. Safnið ávaxtar eignir sínar á verðtryggðum innlánsreikningum.
- Í nóvember voru sett inn ákvæði í fjárfestingarstefnu sem tryggja aukna áhættudreifingu.
- Almenni lífeyrissjóðurinn mun hefja sjálfstæðan rekstur frá 1. maí 2009.
- Ný lán til sjóðfélaga voru veitt til 486 sjóðfélaga en heildarfjárhæð afgreiddra lána var 3.645 milljónir króna.
Nánari upplýsingar um rekstur og afkomu sjóðsins verða veittar á ársfundi sjóðsins sem verður haldinn þriðjudaginn 10. mars kl. 17:15 á Grand hótel Reykjavík.
<<Til baka