10.03.2009
Eingreiðsla 60 ára eða ekki?
Með breytingu á lífeyrissjóðalögunum í desember 2008 var sjóðfélögum heimilað að taka út inneign í séreignarsjóði í einu lagi við 60 ára aldur í stað þess að dreifa úttektinni á sjö ár til 67 ára aldurs eins og var áður.
Eftir að lögunum var breytt hafa margir tekið inneign sína út af ótta við að tekjuskattur verði hækkaður. Við úttekt er greiddur tekjuskattur af útborgunum eins og hverjum öðrum tekjum og því er margt sem bendir til að það sé betra að taka inneignina út ef fyrirsjáanlegt er að tekjuskattur hækkar. En það eru fleiri atriði sem hafa áhrif á þessa ákvörðun og ráða því hvort það borgar sig að taka inneignina út í einu lagi. Í þessari grein er farið yfir þau en taflan sýnir tékklista sem gott er að fara yfir þegar þessi mál eru skoðuð.
Lesa grein.
<<Til baka