Beint í leiðarkerfi

Frétt

11.03.2009

Tímabundin opnun séreignarsparnaðar

Alþingi hefur samþykkt lög sem heimila tímabundna úttekt á séreignarsparnaði til sjóðfélaga yngri en 60 ára. Heimildin er tímabundin og er í gildi 1. mars 2009 til 1. október 2010. Sjóðfélagar geta sótt um útgreiðslu hjá vörsluaðila séreignarsparnaðar. Eingöngu er heimilt að greiða út séreign sem hefur myndast vegna samnings um viðbótarlífeyrissparnað.

Helstu ákvæði lagana eru eftirfarandi.

  • Heimilt er að greiða út allt að 1.000.000 kr. á 9 mánuðum eða 111.111 kr. á mánuði til sjóðfélaga. Sjóðfélagar geta valið aðra fjárhæð og/eða lengri útgreiðslutíma yfir tímabilið
  • Greiddur er tekjuskattur af fjárhæðinni. Mánaðarleg útborgun eftir skatt er 69.777 kr.
  • Eingöngu er heimilt að taka út hjá einum vörsluaðila í einu.
  • Útgreiðslur séreignarsparnaðar skulu hefjast eigi síðar en einum mánuði eftir að fullnægjandi umsókn berst vörsluaðila og greiðist mánaðarlega.
  • Vörsluaðilar þurfa samþykki ríkisskattstjóra áður en útgreiðsla getur hafist.
  • Sjóðfélagi getur afturkallað beiðni um útborgun.
  • Fyrsta greiðsla er áætluð í byrjun apríl og þarf að vera búið að sækja um fyrir 20 mars til að fá greitt í apríl.

Skila þarf inn skriflegri umsókn og er eyðublaðið hér.

Almenni lífeyrissjóðurinn hefur fallið frá því að innheimta kostnað vegna útborgunar séreignarsjóðs við sérstakar aðstæður. Kostnaðurinn átti að renna til sjóðsins og nota til að mæta kostnaði við útborgunina sem felst m.a. í breytingu á tölvukerfum og þóknunar við sölu verðbréfa. Við töldum sanngjarnt að þeir sem valda kostnaðinum myndu greiða hann. Viðbrögð og óánægja við gjaldtökunni voru hins vegar mjög mikil og því hefur verið ákveðið að falla frá innheimtu kostnaðarins.

Á ég að taka út inneignina mína?
Margir hafa haft samband spurt hvort þeir eigi að taka út séreignarsparnaðinn sinn. Við mælum ekki með því en það getur borgað sig fyrir þá sem eru í fjárhagsvandræðum. Lesa meira.

<<Til baka