13.03.2009
Vel heppnaður ársfundur
Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins var haldinn þriðjudaginn 10. mars á Grand hótel. Rúmlega 100 manns sóttu fundinn sem var fjörugur. Á fundinum flutti Páll Ásgeir Pálsson skýrslu stjórnar árið 2008, Gunnar Baldvinsson fór yfir ársreikning sjóðsins og Kristjana Sigurðardóttir gerði grein fyrir fjárfestingarstefnu sjóðsins árið 2009.
Á fundinum voru Páll Ásgeir Pálsson og Vilhelmína Haraldsdóttir kosin í stjórn til þriggja ára en Oddur Ingimarsson til eins árs. Eiríkur Þorbjörnsson var kosin varamaður til þriggja ára og Jón Óli Ólafsson til eins árs.
Eftir ársfundinn kom stjórn Almenna lífeyrissjóðsins saman til fundar og kaus Pál Ásgeir Pálsson sem formann til eins árs og Rannveigu Einarsdóttur sem varaformann.
Ræða Páls Ásgeirs Pálssonar, formanns stjórnar.
Ársskýrsla 2008.
Glærur á ársfundi.
Fundargerð ársfundar.
<<Til baka