17.03.2009
Hækkun í 6%
Samhliða tímabundinni opnun séreignarsparnaðar samþykkti Alþingi að heimila launþegum að hækka iðgjöld til viðbótarlífeyrissparnaðar úr 4% í 6% af launum á tímabilinu 1. mars 2009 til 1. október 2010.
Þetta eru góðar fréttir fyrir þá sem vilja búa í haginn fyrir framtíðina.
- Iðgjöld greiðast óskattlögð í séreignarsjóð.
- Enginn fjármagnstekjuskattur er greiddur af vaxtatekjum.
- Inneign laus við 60 ára aldur.
- Heimilt er að draga persónuafslátt frá útborgunum. Getur nýst sjóðfélögum ef þeir hætta að vinna fyrir 67 ára aldur.
Beiðni um að breyta samningi við Almenna lífeyrissjóðinn og hækka iðgjöld í 6% af launum er að finna hér.
<<Til baka