20.03.2009
Almenni tryggir jafnræði sjóðfélaga
Vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði hefur Almenni lífeyrissjóðurinn gripið til þess að takmarka útgreiðslur og flutninga milli ávöxtunarleiða. Tilgangurinn er að tryggja jafnræði milli sjóðfélaga.
- Eftir bankahrun hafa margir sjóðfélagar óskað eftir því að flytja inneign á Innlánasafn.
- Frá því heimildir til útborgunar séreignarsparnaðar við 60 ára aldur voru rýmkaðar i desember (hægt að taka út inneign í einu lagi í stað þess að dreifa útborgun á sjö ár ) afa mjög margir óskað eftir að fá inneign greidda út í einu lagi. Um 25% af eignum séreignarsjóðsins eru lausar til útborgunar vegna þessara breytinga.
- Með því að heimila sjóðfélögum yngri en 60 ára að taka út 1 milljón þarf að greiða út 25% til viðbótar af eignum séreignarsjóðsins ef allir nýta sér þessa heimild.
- Fjárfestingar Almenna lífeyrissjóðsins hafa tekið mið að því að sparnaðurinn væri bundinn til 60 ára aldurs. Ef greiða ætti út 25%-50% af séreignarsjóði verður að selja þær eignir sem hægt er að breyta í laust fé (einkum ríkisskuldabréf) og aðrir sjóðfélagar myndu þá sitja eftir með breytt eignasafn. Það gengur ekki upp og Almenni lífeyrissjóðurinn mun tryggja að jafnræði sjóðfélaga verði gætt og að eignahlutföll breytist ekki.
Til að tryggja jafnræði sjóðfélaga hefur Almenni lífeyrissjóðurinn því gripið til eftirfarandi ráðstafana:
- Lífeyrisgreiðslur úr séreignarsjóði verða takmarkaðar við 500.000 kr. á mánuði eða inneign greidd út á með jöfnum mánaðarlegum útborgunum á tímabilinu 1. mars 2009 til 1. október 2010. Lífeyrisgreiðslur verða óbreyttar hjá þeim sem hafa þegar hafið töku lífeyris.
- Flutningur á inneign milli ávöxtunarleiða eða til annarra vörsluaðila verða framkvæmdur með jöfnum greiðslum á tímabilinu 1. mars 2009 til 1. október 2010. Flutningur á inneign hefst í næsta mánuði eftir að beiðni berst.
- Hámarkslán til sjóðfélaga lækka tímabundið í 10 milljónir.
Takmörkunin er tímabundin og verður endurskoðuð mánaðarlega í samráði við Fjármálaeftirlitið. Sjóðurinn mun vinna í að bæta lausafjárstöðuna með sölu eigna án þess þó að breyta hlutföllum milli eignaflokka. Markmiðið er að aflétta þessum takmörkunum við fyrsta tækifæri. Almenni lífeyrissjóðurinn ítrekar að þetta er gert til að allir sjóðfélagar sitji við sama borð og til að koma í veg fyrir að eignir sjóðfélaga rýrni vegna breyttra forsendna. Við munum birta reglulega fréttir frá sjóðnum á heimasíðunni, www.almenni.is, og eru sjóðfélagar hvattir til að fylgjast með þróun mála þar.
<<Til baka