Beint í leiðarkerfi

Frétt

23.03.2009

Tvær nýjar ávöxtunarleiðir

Almenni býður nú sjóðfélögum að fjárfesta í tveimur ríkisskuldabréfasöfnum. Mikil eftirspurn er nú eftir öruggum skuldabréfum og vill sjóðurinn bregðast við með því að bjóða sjóðfélögum að fjárfesta í ríkisskuldabréfum með sjóðnum. Skuldabréfin eru öll með ábyrgð íslenska ríkisins þannig að skuldaraáhætta er í lágmarki. Þetta er einstakt tæki­færi fyrir sjóðfélaga því með þessu móti gefst þeim kostur að fjárfesta í ríkisskulda­bréfum á sömu kjörum og lífeyrissjóðurinn.

Sjóðfélagar geta valið á milli tveggja safna með mismunandi eignasamsetningu. Söfnin eru:

Löng ríkisskuldabréf

  • Að mestu leyti verðtryggð skuldabréf.
  • Fjárfestir í skuldabréfum Íbúðarlánasjóðs. Áætlaður meðaltími 8-12 ár.
  • Sveiflast töluvert í ávöxtun en góð langtímaávöxtun.
  • Hentar fyrir þá sem hyggjast ekki ganga á inneign sína næstu 12 mánuði.

Stutt ríkisskuldabréf

  • Að mestu leyti óverðtryggð skuldabréf, getur einnig fjárfest í innlánum banka.
  • Fjárfestir í ríkisvíxlum og ríkisbréfum. Áætlaður meðaltími 1-3 ár.
  • Sveiflast í verði en minna en löngu ríkisskuldabréfin.
  • Hentar fyrir þá sem hyggjast ganga á inneign sína á næstu 12 mánuðum.
<<Til baka