01.04.2009
Frestun á greiðslu
Vegna mikils fjölda umsókna tókst ekki að borga út fyrstu greiðslu vegna tímabundinnar opnunar séreignarsparnaðar þann 1. apríl eins og stefnt hefði verið að. Stefnt er að fyrstu greiðslu fyrir páska.
Sjóðnum hafa borist um 2000 umsóknir og tekur tíma að vinna úr þeim. Meðal annars þarf að tilkynna allar greiðslur til Ríkisskattstjóra sem hefur eftirlit með að einstaklingar geti ekki tekið út hærri fjárhæð en lög heimila.
Við hörmum þessa töf og munum gera allt til að geta borgað fyrstu greiðslu fyrir páska.
Starfsfólk Almenna lífeyrissjóðsins.
Tímabundin opnun séreignarsparnaðar
<<Til baka