Beint í leiðarkerfi

Frétt

20.05.2009

Auknar varúðarafskriftir

Vegna greiðslufalls á skuldabréfum Bakkavarar og greiðsluerfiðleika fleiri útgefenda skuldabréfa hefur Almenni lífeyrissjóðurinn ákveðið að auka varúðarafskriftir af skuldabréfum sjóðsins. Vegna þessa lækkaði gengi ávöxtunarleiða um í dag um -0,7% til -5,8% (Ævisafn I -0,7%, Ævisafn II -1,2%, Ævisafn III -5,8% og Ævisafn IV -3,5%). Fyrr á árinu hafði sjóðurinn aukið varúðarafskriftir m.a. vegna falls Straums. Þetta skýrir neikvæða ávöxtun Ævisafna III og IV frá áramótum.

Frá því viðskiptabankanirnir féllu í október 2008 og versta efnahagsáfall þjóðarinnar á síðari tímum skall á hefur sjóðurinn afskrifað verulegan hluta af innlendum eignum með varúðarafskriftum. Til að tryggja jafnræði sjóðfélaga hefur sjóðurinn haft þá vinnureglu að miða afskriftirnar við verstu mögulegu útkomu og afskrifa frekar meira en minna. Við vonumst til að eitthvað af afskriftunum geti skilað sér til baka en á þessari stundu er ekkert hægt að segja til um það annað en að það mun taka langan tíma að koma í ljós.

Almenni lífeyrissjóðurinn harmar að þurfa að stíga þessi skref en þau eru óhjákvæmileg vegna efnahagsáfallsins.

Gengi Ævisafna III og IV lækka mest vegna varúðarafskriftanna þar sem innlend skuldabréf eru stærsti hluti eigna þeirra. Skuldabréf safnanna eru verðtyggð og bera nú 7,3% (Ævisafn III) og 8,2% Ævisafn IV) vexti umfram verðbólgu. Ávöxtun safnanna ætti því að geta verið góð á næstu misserum.

Upplýsingafundir fyrir sjóðfélaga

Almenni lífeyrissjóðurinn hefur ákveðið að vera með reglulega rabbfundi í húsnæði sjóðsins í Borgartúni 25 þar sem sjóðfélagar geta hitt starfsmenn og spurt spurninga eða rætt um málefni sjóðsins. Fundarherbergið okkar tekur um 30 manns og verða sjóðfélagar að skrá þátttöku. Ef þátttaka verður meiri munum við halda annan fund við fyrsta tækifæri.

Fyrsti rabbfundurinn verður miðvikudaginn 3. júní kl. 8:15-9:30. Á þeim fundi munum við fara yfir eignir og ávöxtun sjóðsins. Sjóðfélagar geta skráð þátttöku hér.

Við erum líka tilbúin að taka á móti sjóðfélögum sem vilja koma í heimsókn og ræða málin á öðrum tíma. Einnig erum við tilbúin að koma á vinnustaði sé þess óskað. Hringið í síma 510-2500 eða sendið póst á almenni@almenni.is

<<Til baka