Beint í leiðarkerfi

Frétt

27.05.2009

Rabbfundur um ávöxtun

Almenni lífeyrissjóðurinn hefur ákveðið að vera með reglulega rabbfundi í húsnæði sjóðsins í Borgartúni 25 þar sem sjóðfélagar geta hitt starfsmenn og spurt spurninga eða rætt um málefni sjóðsins. Fundarherbergið okkar tekur um 30 manns og verða sjóðfélagar að skrá þátttöku. Ef þátttaka verður meiri munum við halda annan fund við fyrsta tækifæri.

Fyrsti rabbfundurinn verður miðvikudaginn 3. júní kl. 8:15-9:30. Á þeim fundi munum við fara yfir eignir og ávöxtun sjóðsins.

Við erum líka tilbúin að taka á móti sjóðfélögum sem vilja koma í heimsókn og ræða málin á öðrum tíma. Einnig erum við tilbúin að koma á vinnustaði sé þess óskað. Hringið í síma 510-2500 eða sendið póst á almenni@almenni.is

<<Til baka