04.06.2009
Næsti rabbfundur
Dræm mæting var á fyrsta rabbfundi Almenna lífeyrissjóðsins sem var haldinn miðvikudaginn 3. júní kl. 8:15. Á fundinum var farið yfir eignir og ávöxtun sjóðsins.
Tilgangurinn með rabbfundunum er að miðla upplýsingum til sjóðfélaga og gefa þeim kost á spyrja starfsmenn spurninga og ræða málefni sjóðsins. Fundirnir eru haldnir í húsnæði sjóðsins í Borgartúni 25 og verða sjóðfélagar að skrá þátttöku. Næsti rabbfundur verður þriðjudaginn 30. júní kl. 8:15. Á þeim fundi munum við fara yfir eignir og ávöxtun sjóðsins og ræða sérstaklega um áhrif efnahagshrunsins á samtryggingarhluta sjóðsins.
Hlé verður á rabbfundunum í júlí og ágúst en í september hefjast þeir aftur. Við stefnum á að halda fundina mánaðarlega ef næg þátttaka fæst. Við erum líka tilbúin að taka á móti sjóðfélögum sem vilja koma í heimsókn á öðrum tímum og ræða málin. Einnig erum við tilbúin að koma á vinnustaði sé þess óskað. Hringið í síma 510-2500 eða sendið póst á almenni@almenni.is.
<<Til baka