Beint í leiðarkerfi
Frétt
12.06.2009
Áframhaldandi aðgerðir til að tryggja jafnræði
Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins hefur ákveðið í samráði við Fjármálaeftirlitið að framlengja takmörkun á útgreiðslum og flutningum milli ávöxtunarleiða til að tryggja jafnræði sjóðfélaga. Frá því viðskiptabankarnir féllu í október hafa mjög margir sjóðfélagar óskað eftir breytingum á ávöxtunarleið. Þar sem fjárfestingar sjóðsins hafa tekið mið af því að sparnaðurinn væri bundinn til margra ára þýða miklar breytingar að selja verður eignir sem hægt er að breyta í laust fé, einkum ríkisskuldabréf. Ef það yrði gert myndu eignahlutföll breytast hjá þeim sem hyggjast halda áfram að geyma sparnað sinn í viðkomandi ávöxtunarleið. Þess vegna var gripið til þess ráðs að dreifa útborgununum og flutningum á lengri tíma til að tryggja að allir sjóðfélagar sitji við sama borð og til að koma í veg fyrir að eignir rýrni vegna breyttra forsendna. Takmarkanirnar eru:
Lífeyrisgreiðslur úr séreignarsjóði verða takmarkaðar við 500.000 kr. á mánuði eða inneign greidd út á með jöfnum mánaðarlegum útborgunum á tímabilinu 1. mars 2009 til 1. október 2010. Lífeyris¬greiðslur verða óbreyttar hjá þeim sem hafa þegar hafið töku lífeyris.
Flutningur á inneign milli ávöxtunar¬leiða eða til annarra vörsluaðila verða framkvæmdur með jöfnum greiðslum á tímabilinu 1. mars 2009 til 1. október 2010. Flutningur á inneign hefst í næsta mánuði eftir að beiðni berst.
Hámarkslán til sjóðfélaga lækka tímabundið í 10 milljónir.
Takmörkunin er tímabundin og verður endurskoðuð mánaðarlega í samráði við Fjár¬málaeftirlitið. Sjóðurinn mun vinna í að bæta lausafjárstöðuna með sölu eigna án þess þó að breyta hlutföllum milli eignaflokka. Markmiðið er að aflétta þessum takmörkunum við fyrsta tækifæri.
<<Til baka
Hafðu samband
Sendu okkur póst
Nafn:*
Kennitala:
Netfang:*
Efni:*
Hringdu í okkur
Þjónustuver Almenna lífeyrissjóðsins
Sími: 510-2500
Þjónustuverið er opið alla daga milli klukkan 9:00 og 16:00
Lífeyrisyfirlit á sjóðfélagavef Almenna lífeyrissjóðsins
Skilagreinayfirlit á launagreiðendavef Almenna lífeyrissjóðsins
Almenni
Ársreikningur
Fjárfestingastefna
Samþykktir
Um Almenna
Fréttir
Netpóstur
Rabbfundir
Lokaður vefur
English
Lífeyrissjóður
Lífeyrissparnaður
Lán
Launagreiðendur
Almenni
Veftré
Hafðu samband
English
Forsíða
>
Almenni
>
Fréttir
>
Frétt
Leit
Venjulegt letur
Stórt letur
Almenni lífeyrissjóðurinn | Borgartúni 25 | 105 Reykjavík | Sími 510-2500 | Fax 510-2550 | Fax lánadeild 440-3901 | Netfang:
almenni@almenni.is
| kt. 450290-2549
Afgreiðslutími skrifstofu er alla virka daga milli kl: 9:00 og 16:00