15.06.2009
Iðgjöld greiðast áfram í Innlánssafn
Frá falli viðskiptabankanna í haust hefur öllum iðgjöldum í séreignarsjóð verið ráðstafað í Innlánasafn sem ávaxtar eignir sínar á innlánsreikningum innlánsstofnanna. Þessi ákvörðun var tekin vegna óvissu á fjármálamörkuðum og óvissum um mat á ýmsum eignum lífeyrissjóðsins vegna efnahagsáfallsins. Þegar óvissunni linnir verður iðgjöldum að nýju varið til fjárfestinga til samræmis við val sjóðfélaga og verður sjóðfélögum send tilkynning þess efnis.
Margir sjóðfélagar hafa haft samband og spurt hvort og þá hvenær þessari ráðstöfun verði aflétt. Vextir á bankainnstæðum hafa lækkað hratt síðustu vikur og margt bendir til þess að vextirnir muni lækka enn frekar á næstu mánuðum. Vegna þessa viljum við benda sjóðfélögum á eftirfarandi:
- Tímabundin ráðstöfun iðgjalda í Innlánasafnið verður endurskoðuð í haust. Þrátt fyrir vaxtalækkun er ávöxtun safnsins ennþá mjög góð og innstæður eru að mestu verðtryggðar.
- Sjóðfélagar sem vilja greiða framtíðariðgjöld strax inn á eldri ávöxtunarleiðir eða nýju ríkissöfnin geta haft samband við sjóðinn með því að senda tölvupóst á netfangið almenni@almenni.is.
- Þrátt fyrir nokkra vaxtalækkun í apríl og maí eru vextir á Íslandi enn mjög háir í alþjóðlegu samhengi. Margt bendir til þess að vextir á Íslandi muni halda áfram að lækka á næstu mánuðum og misserum. Við slíkar aðstæður getur verið skynsamlegt að fjárfesta í löngum skuldabréfum með föstum vöxtum til að læsa inn fasta ávöxtun til langs tíma. Langa ríkissafnið hentar vel til þess en við ráðleggjum þó engum að fjárfesta í því sem ætlar að nota höfuðstól sinn innan sex mánaða.
- Við ráðleggjum sjóðfélögum í Ævisöfnunum að halda eign sinni þar. Til lengri tíma eru söfnin einnig áhugaverður kostur fyrir ný iðgjöld. Skuldabréf safnanna eru með föstum vöxtum og verð á erlendum hlutabréfum er lágt í sögulegu samhengi.
<<Til baka