Beint í leiðarkerfi

Frétt

16.06.2009

Óbreyttur áfallalífeyrir

Samkvæmt samþykktum Almenna lífeyrissjóðsins greiðist áfallalífeyrir úr samtryggingarsjóði (örorku-, maka- og barnalífeyrir) úr tryggingadeild sjóðsins. Verði hagnaður eða tap af rekstri deildarinnar er það jafnað út árlega með því að mismunur á eignum og áætluðum skuldbindingum færist á milli hennar og eftirlaunadeildar. Þetta þýðir í raun að áfallalífeyrir er varinn og að sjóðfélagar ábyrgjast greiðslu hans með þeim fjármunum sem eru lagðir til hliðar til að greiða ævilangan ellilífeyri. Áfallnar skuldbindingar tryggingadeildar voru 22,1% umfram eignir og því færðust 2,2 milljarðar úr eftirlaunadeild í tryggingadeildina á þessu ári. Það er svipuð tala og tryggingadeildin hagnaðist á árunum 2006 og 2007 og greidd var í eftirlaunadeildina. Frá því fyrirkomulagi samtryggingarsjóðs Almenna var breytt í ársbyrjun 2006 hefur afkoma tryggingadeildar haft óveruleg áhrif á áætlaðar lífeyrisgreiðslur.

Þátttaka einstakra sjóðfélaga í hagnaði eða tapi ræðst af skuldbindingu hvers og eins í tryggingadeild og er reiknuð út af tryggingastærðfræðingi sjóðsins. Margir sjóðfélagar hafa tekið eftir því á yfirlitum í netbanka að eftirlaunasjóður þeirra og áætlaðar lífeyrisgreiðslur frá 70 ára aldri hafa lækkað vegna tryggingafræðilegs uppgjörs. Ef litið er yfir lengra tímabil eða frá 1. janúar 2006 eru áhrifin hins vegar óveruleg.

<<Til baka