18.06.2009
Áætlaðar lífeyrisgreiðslur breytast daglega
Margir sjóðfélagar hafa tekið eftir því áætlaður ellilífeyrir úr samtryggingarsjóði hefur lækkað töluvert eftir að efnahagsáfallið skall á. Vegna þess mætti draga þá ályktun að réttindi í Almenna lífeyrissjóðnum hefðu lækkað meira en hjá öðrum sjóðum en svo er ekki. Skýringin liggur í því að úthlutun lífeyrisréttinda í Almenna lífeyrissjóðnum er frábrugðin öðrum sjóðum. Almenni lífeyrissjóðurinn er eini lífeyrissjóður landsins sem reiknar daglega áætlaðar lífeyrisgreiðslur út frá stöðu eigna og tryggingafræðilegum forsendum. Breytingar á eignum koma því strax fram í áætlunum okkar um lífeyrisgreiðslur.
Hjá öðrum lífeyrissjóðum er fyrirkomulagið öðruvísi. Hjá þeim er sjóðfélögum lofað tilteknum réttindum við innborganir. Réttindin eru verðtryggð og breytast í takt við verðlag eða ef sjóðir verða að breyta réttindum vegna breyttra forsendna eða afkomu. Þegar réttindum er lofað er stuðst við lágmarksávöxtun þannig að mjög oft eru sjóðir í raun að lofa minnu en eignir gefa tilefni til. Reynsla síðustu ára staðfestir þetta en þá hækkuðu flestir sjóðir réttindi í kjölfar hárrar ávöxtunar um árabil.
Hjá Almenna lífeyrissjóðnum er þessu öfugt farið. Sjóðurinn reiknar daglega áætlaðar lífeyrisgreiðslur og miðar við raunstöðu eigna. Þetta þýðir að áætlaðar greiðslur hækka hratt ef ávöxtun er góð en lækka að sama skapi hratt ef ávöxtun er lág eða neikvæð. Þannig hækkuðu áætlaðar lífeyrisgreiðslur um nálægt 20% árið 2006 þegar ávöxtun var mjög góð en í fyrra lækkuðu þær þegar eignir rýrnuðu vegna efnahagsáfallsins og fjármálakreppunnar.
<<Til baka