23.06.2009
Áhrif skattabreytinga
Samkvæmt áformum ríkisstjórnarinnar munu launatekjur umfram 700.000 kr. verða skattlagðar sérstaklega um 8% frá og með 1. júlí 2009, þ.e. svokallaður hátekjuskattur kemur til innheimtu. Skatturinn verður innheimtur mánaðarlega en endurskoðaður í lok árs og þá reiknaður af meðalmánaðartekjum, eða heildartekjum umfram 8,4 milljónir á ári (4,2 milljónir til áramóta 2010).
Margir hafa velt því fyrir sér hvort taka eigi séreignarsparnað út af ótta við skattahækkanir. Við úttekt séreignarsparnaðar er greiddur tekjuskattur og nú til viðbótar hátekjuskattur fari mánaðarlegar heildartekjur yfir 700.000 kr. Það er ekki bara mikilvægt að íhuga hækkun tekjuskatts. Með hækkun fjármagnstekjuskatts verður séreignarsparnaður enn hagkvæmari þar sem ekki er greiddur fjármagnstekjuskattur af sparnaðinum, nú 15%.
Í þessari grein er farið yfir áhrif þeirra skattbreytinga sem ríkisstjórnin áformar.
Smelltu hér til að lesa greinina á pdf formi
<<Til baka