Beint í leiðarkerfi

Frétt

09.07.2009

Af gefnu tilefni

Í Morgunblaðinu í dag er frétt um skuldir Samson við ríkisbankana vegna kaupa félagsins á hlutabréfum Landsbankans þegar bankinn var einkavæddur. Í fréttinni kemur fram að félagið skuldar nokkrum lífeyrissjóðum hátt í 10 milljarða, þ.a.m. Almenna lífeyrissjóðnum.

Vegna fréttarinnar vill Almenni lífeyrissjóðurinn koma á framfæri að sjóðurinn fjárfesti á árunum 2005 til 2007 í skuldabréfum útgefnum af Samson fyrir 380 milljónir sem er einungis brot af þeirri fjárhæð sem fullyrt er að félagið skuldi lífeyrissjóðum. Það var hluti af fjárfestingarstefnu Almenna lífeyrissjóðsins að fjárfesta í skuldabréfum banka og fyrirtækja og byggja upp safn skuldabréfa með mörgum skuldurum til að draga úr áhættu. Flest skuldabréfin, sem sjóðurinn keypti voru skráð í Kauphöll Íslands, en samkvæmt lögum skulu lífeyrissjóðir fjárfesta 80% (var 90%) af eignum í skráðum verðbréfum. Skuldabréf banka og fyrirtækja voru einu skráðu skuldabréfa¬flokkarnir sem hægt var að kaupa verðtryggða til skamms tíma. Með fjárfestingum í þeim var stefnt að hærri ávöxtun samhliða því að draga úr sveiflum.

Reynslan af þessum eignaflokki hefur verið afar slæm eftir að efnahagsáfallið skall á í október 2008. Mörg fyrirtæki eru orðin gjaldþrota eða hafa lent í greiðsluerfiðleikum og ekki getað greitt af skuldabréfunum. Lífeyrissjóðir hafa því þurft að afskrifa verulegan hluta af þessum eignum. Vegna þessa er ólíklegt að sjóðirnir fjárfesti mikið í þessum eignaflokki á næstunni nema ef fyrirtæki geta lagt fram tryggingar eða verði tilbúin að fallast á ýmsa skilmála til að tryggja kröfu eiganda skuldabréfanna.

<<Til baka