20.07.2009
Breytingar á lífeyrisgreiðslum TR
Um síðustu mánaðarmót þá tóku í gildi breytingar á lögum um almannatryggingar og hafa þær áhrif á ellilífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun Ríkisins. Helstu breytingarnar eru:
-
Ellilífeyrir úr lífeyrissjóðum hefur áhrif á útreikning grunnlífeyris sem eru kr. 29.294 á mánuði í dag. Frítekjumark er 214.602 kr. á mánuði og fellur grunnlífeyrinn alveg niður ef lífeyrisgreiðslur og/eða launatekjur eru hærri enn 311.778 kr á mánuði. Eftir sem áður þá hafa greiðslur úr séreignarsjóði ekki áhrif á á grunnlífeyrinn.
-
Óskert tekjutrygging ellilífeyrisþega í dag er kr. 92.441. Búið er að hækka skerðingarhlutfall tekjutryggingar úr 38,35% í 45% og setja á frítekjumark á lífeyrissjóðstekjur að fjárhæð kr. 10.000 á mánuði. Þetta þýðir að 45% af lífeyrisgreiðslum úr lífeyrissjóðum yfir kr. 10.000 kr. skerða tekjutrygginguna. Eftir sem áður þá hafa greiðslur úr séreignarsjóði ekki áhrif á á tekjutrygginguna.
-
Ekki er lengur heimilt að velja á milli frítekjumarks atvinnutekna eða 60% af atvinnutekjum vegna útreiknings tekjutryggingar. Frítekjumark ellilífeyrisþega eru kr. 480.000 á ári og örorkulífeyrisþega kr. 1.315.200.
-
Fyrr í vetur þá var gerð breyting á hvernig fjármagnstekjur skerða lífeyrir frá Tryggingastofnun. Í stað þess að aðeins helmingur fjármagnstekna reiknast til skerðingar á lífeyrir þá reiknast allar fjármagnstekjur yfir kr. 98.640 á ári í skerðingarstofn bæði gagnvart grunnlífeyri og tekjutryggingu.
Á sama tíma og breytingar voru gerðar á lögum um almannatryggingar þá voru gerðar breytingar á tekjuskattslögum. Í tilefni af því þá birtist frétt um þær breytingar á vefnum og er hægt að lesa fréttina hér.
<<Til baka