24.07.2009
Endurskoðunarnefnd
Þann 1. janúar 2009 tók gildi ákvæði í lögum um ársreikninga þar sem kveðið er á við einingar tengdum almannahagsmunum, þ.a.m. lífeyrissjóðum, skuli starfa endurskoðunarnefnd.
Hlutverk nefndarinnar er eftirfarandi:
- Eftirlit með vinnuferli við gerð reikningsskila.
- Eftirlit með fyrirkomulagi og virkni innra eftirlits einingarinnar, innri endurskoðun, ef við á, og áhættustýringu.
- Eftirlit með endurskoðun ársreiknings og samstæðureiknings einingarinnar.
- Mat á óhæði endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis og eftirlit með öðrum störfum endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtækis.
- Setja fram tillögu til stjórnar um val á endurskoðanda eða endurskoðunarfyrirtæki.
Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins skipað eftirfarandi aðila í endurskoðunarnefnd sjóðsins:
- Gísli Hlíðberg Guðmundsson, formaður nefndarinnar. Gísli er löggiltur endurkoðandi og starfar hjá fjármálaskrifstofu Reykjavíkurborgar.
- Ólafur Jónsson, verkefnastjóri hjá Skeljungi.
- Eiríkur Þorbjörnsson, deildarstjóri hjá Verkís. Eiríkur sat um árabil í aðalstjórn sjóðsins en er nú í varastjórn.
Endurskoðunarnefndin hefur þegar hafið störf. Fyrsta verkefni nefndarinnar var að semja tillögu um starfsreglur sem stjórn sjóðsins hefur samþykkt.
Starfsreglur endurskoðunarnefndar.
<<Til baka