Beint í leiðarkerfi

Frétt

07.08.2009

Eftirlaunasjóður starfsmanna Glitnis banka hf. sameinast Almenna lífeyrissjóðnum

Ákveðið hefur verið að leggja til að Eftirlaunasjóður starfsmanna Glitnis banka hf. sameinist Almenna lífeyrissjóðnum frá og með 1. október 2009. Tillaga þess efnis var kynnt á ársfundi Eftirlaunasjóðs starfsmanna Glitnis banka hf. í júní en sjóðfélagar Almenna lífeyrissjóðsins munu kjósa um sam¬eininguna á sjóðfélagafundi í september.

Verði sameiningin samþykkt munu réttindi sjóðfélaga í Eftirlaunasjóði starfsmanna Glitnis banka hf. flytjast í Almenna lífeyrissjóðinn og fá sjóðfélagarnir sambærileg réttindi og þeir höfðu áður í eftirlaunasjóðnum. Réttindin breytast þó þannig að í framtíðinni verða lífeyris¬greiðslur verðtryggðar miðað við vísitölu neysluverðs í staðinn fyrir launavísitölu.

Eftirlaunasjóður starfsmanna Glitnis banka hf. er sameignarsjóður sem var með ábyrgð launa-greiðanda og bar Glitnir banki hf. ábyrgð á skuldbindingum hans samkvæmt samþykktum. Við fall Glitnis í október 2008 var ljóst að bankinn gat ekki lengur staðið við ábyrgð sína. Þar sem sjóðurinn uppfyllir ekki skilyrði um lágmarksfjölda sjóðfélaga fór Fjármálaeftirlitið fram á að stjórn sjóðsins gerði ráðstafanir til að slíta sjóðnum eða sameinast öðrum sjóði. Eftir könnunarviðræður við aðra lífeyrissjóði var ákveðið að óska eftir formlegum sameiningarviðræðum við Almenna lífeyrissjóðinn.

Heildareignir Almenna lífeyrissjóðsins voru 83,2 milljarðar í ársbyrjun 2009 og Eftirlaunasjóðs starfsmanna Glitnis banka hf. 6,4 milljarðar. Heildareignir sameinaðs sjóðs verða því um 90 milljarðar.

Nánari upplýsingar:
Helga Melkorka Óttarsdóttir
formaður stjórnar Eftirlaunasjóðs starfsmanna Glitnis banka hf.
s. 540 0300

Páll Ásgeir Pálsson
formaður stjórnar Almenna lífeyrissjóðsins
s. 693-4287.

Tillögur um breytingar á samþykktum

<<Til baka