Beint í leiðarkerfi

Frétt

19.08.2009

Spurt og svarað

Ákveðið hefur verið að leggja til að Eftirlaunasjóður starfsmanna Glitnis banka hf. sameinist Almenna lífeyrissjóðnum. Tillaga þess efnis var kynnt á ársfundi Eftirlaunasjóðs starfsmanna Glitnis banka hf. í júní en sjóðfélagar Almenna lífeyrissjóðsins munu kjósa um sameininguna á sjóðfélagafundi 28. september. Vegna þessa höfum við tekið saman nokkrar spurningar um sameiningar tillöguna og svör við þeim.

Er Almenni lífeyrissjóðurinn að taka á sig auknar skuldbindingar ef Eftirlaunasjóður starfsmanna Glitnis banka hf. sameinast sjóðnum?

Hverjir meta eignir og skuldbindingar sjóðanna?

Hver er ávinningur Almenna lífeyrissjóðsins af því að Eftirlaunasjóður starfsmanna Glitnis banka hf. sameinist sjóðnum?

Verður starfsfólki fjölgað og mun rekstrarkostnaður Almenna lífeyrissjóðsins aukast vegna sameiningarinnar?

Tekur Almenni lífeyrissjóðurinn við ábyrgð launagreiðanda á skuldbindingum sjóðsins sem Glitnir banki bar áður?

Hvernig flytjast réttindi í Eftirlaunasjóði starfsmanna Glitnis banka hf. í Almenna lífeyrissjóðinn?

Við flutninginn munu réttindi sjóðfélaga í Eftirlaunasjóði starfsmanna Glitnis banka hf. breytast þannig að í framtíðinni verða lífeyrisgreiðslur verðtryggðar samkvæmt verðtryggingarákvæðum Almenna lífeyrissjóðsins eða miðað við vísitölu neysluverðs í staðinn fyrir launavísitölu. Vegna breyttrar verðtryggingar mun fjárhæð lífeyrisgreiðslna og réttinda hækka við sameininguna en endanleg fjárhæð lífeyrisréttinda mun ráðast af lokauppgjöri eftirlaunasjóðsins og hlutfalli eigna og skuldbindinga á uppgjörsdegi.

<<Til baka