Beint í leiðarkerfi

Frétt

11.09.2009

Um sjóðfélagafund

Almenni lífeyrissjóðurinn efnir til sjóðfélagafundar á Grand Hótel Reykjavík mánudaginn 28. september nk. kl. 17:15. Tilgangur fundarins er þríþættur:

  1. Á fundinum verður flutt skýrsla um rekstur og afkomu sjóðsins á árinu.
  2. Á fundinum verður lögð fram tillaga um að Eftirlaunasjóður starfsmanna Glitnis banka hf. sameinist Almenna lífeyrissjóðnum.
  3. Á fundinum verða lagðar fram tillögur um breytingar á samþykktum.

Skýrsla um rekstur og afkomu

Þetta er þriðji sjóðfélagafundurinn sem Almenni lífeyrissjóðurinn efnir til eftir að efnahagsáfallið skall á Íslandi með falli viðskiptabankanna í október 2008. Sjóðurinn hefur líkt og flestir aðrir fjárfestar orðið fyrir eignarýrnun sem hefur haft áhrif á afkomu hans á þessu og síðasta ári. Á fundinum verðar gefnar upplýsingar um stöðu sjóðsins og horfurnar framundan.

Stjórn sjóðsins hefur lagt áherslu á að veita upplýsingar um reksturinn og eru sjóðfélagafundirnir liður í því að efla upplýsingastreymi til sjóðfélaga. Almenni lífeyrissjóðurinn mun í vetur einnig efna til sérstakra rabbfunda fyrir sjóðfélaga í húsnæði sjóðsins þar sem sjóðfélagar geta hitt starfsmenn og spurt spurninga eða rætt um málefni sjóðsins. Rabbfundirnir eru auglýstir á heimasíðu sjóðsins.

Sameiningarmál

Á fundinum verða lögð fram tillaga um að Eftirlaunasjóður starfsmanna Glitnis banka hf. sameinist Almenna lífeyrissjóðnum. Tilgangurinn er að stækka sjóðinn og lækka rekstrarkostnað. Tillagan verður borin undir fundinn með öðrum tillögum um breytingar á samþykktum. Sjóðfélagar geta lesið spurningar og svör um sameiningartillöguna hér.

Breytingar á samþykktum

Á sjóðfélagafundinum verða lagðar fram tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins. Sú umfangsmesta er tillaga um að breyta fyrirkomulagi samtryggingarsjóðs og sameina deildir sjóðsins í einn sjóð. Tillögurnar um breytingar á samþykktum má lesa hér en fyrir aftan er greinargerð um þær. Til að breyta samþykktum þarf samþykki 2/3 greiddra atkvæða á sjóðfélagafundi.

Nýjar ávöxtunarleiðir

Lagt er til að ávöxtunarleiðum sjóðsins verði fjölgað með tveimur söfnum sem fjárfesta í löngum og stuttum ríkisskuldabréfum. Mikil eftirspurn er nú eftir öruggum skuldabréfum og vill sjóðurinn bregðast við með því að bjóða sjóðfélögum að fjárfesta í ríkisskuldabréfum.

Kostnaður við að breyta um ávöxtunarleiðir

Eftir efnahagshrunið hefur það aukist að sjóðfélagar vilji skipta um ávöxtunarleiðir og er ekkert nema gott um það að segja. Almenni lífeyrissjóðurinn hefur brugðist við með því að fjölga ávöxtunarleiðum í takt við óskir sjóðfélaga. Lagt er til að sjóðfélagar greiði lágmarkskostnað við að skipta um ávöxtunarleiðir þar sem það kostar að selja verðbréf og færa eignir milli leiða.

Tillaga um að sameina deildir samtryggingarsjóðs

Þegar Lífeyrissjóður lækna og Almenni lífeyrissjóðurinn sameinuðust í ársbyrjun 2006 var fyrirkomulagi samtryggingarsjóðs breytt og eignum eldri samtryggingarsjóða skipt á milli þriggja deilda (eftirlaunadeildar, tryggingadeildar og lífeyrisdeildar). Tilgangurinn var að aðgreina fjárfestingaráhættu sjóðfélaga (sem eru að safna upp réttindum) og lífeyrisþega (sem fá lífeyrisgreiðslur) og losa lífeyrisþega við sveiflur í ávöxtun hlutabréfa með því að ávaxta eignir þeirra eingöngu í skuldabréfum.

Efnahagshrunið á Íslandi árið 2008 og 2009 hefur leitt í ljós að forsendur sem voru til grundvallar við uppskiptingu eigna á milli deilda samtryggingarsjóðsins stóðust ekki. Markmiðið var að eignir lífeyrisdeildar (greiðir ellilífeyri) og Ævisafns III (geymir eftirlaunasjóði sjóðfélaga 60 ára og eldri) væru að mestu ávaxtaðar í skuldabréfum með stuttan meðaltíma til að tryggja jafna og stöðuga ávöxtun. Af þessum sökum vógu skuldabréf banka, sparisjóða og fyrirtækja mjög þungt í eignum þessara safna en þau hafa farið mjög illa út úr efnahagshruninu. Fjármálakerfi landsins er hrunið og flest fyrirtæki landsins eru í greiðsluerfiðleikum eða hafa þurft að ganga í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu. Til að bæta gráu ofan á svart voru sett neyðarlög við fall bankanna sem gera það að verkum að endurheimtuhlutfall bankabréfa verður mun lægra en það hefði verið við óbreytt lagaumhverfi.

Vegna þessa forsendubrests hefur stjórn Almenna lífeyrissjóðsins ákveðið að leggja til að samþykktum sjóðsins verði breytt og að sjóðurinn taki aftur upp fyrra fyrirkomulag samtryggingarsjóðs. Í því felst að eignir deilda samtryggingarsjóðsins verða sameinaðar og lífeyrisréttindi endurreiknuð frá 2006. Tilgangurinn með þessari breytingu er að efla sjóðinn til að takast á við efnahagshrunið og jafna afleiðingum þess á milli sjóðfélaga. Réttindi sjóðfélaga í sameinuðum samtryggingarsjóði verða eftirfarandi:

  • Ellilífeyrisréttindi sjóðfélaga í samtryggingarsjóði vegna iðgjalda á tímabilinu 1.1. 2006 til 31.12.2009 verða endurreiknuð samkvæmt réttindatöflu örorku vegna elli- og örorkuréttinda á hverjum tíma.
  • Eftirlaunasjóðir 1. janúar 2006 í eftirlaunadeild breytast í ævilöng ellilífeyrisréttindi frá 70 ára aldri
  • Endurreiknuð og áunnin ellilífeyrisréttindi 31.12.2009 lækka um 10%. Réttindi núverandi ellilífeyrisþega breytast ekki við þessa aðgerð.
  • Áunnin tryggingaréttindi 1. janúar 2006 eru flutt örorku-, maka- og fjölskyldulífeyrisréttindi (þar með talin sérstök líftrygging lækna) ásamt eftirlaunasjóðum í eftirlaunadeild sem eru skráðir á nafn sjóðfélaga. Áunnu tryggingaréttindin lækka um 10% en breytast að öðru leyti ekki. Barnalífeyrisréttindi breytast ekki.
  • Réttindi ellilífeyrisþega sem hafa hafið töku ellilifeyris á tímabilinu frá 1. janúar 2006 til 31.12.2009 verða endurreiknuð samkvæmt liðum 1 og 2 og leiðrétt ef endurreiknuð réttindi reynast hærri heldur en áður úrskurðaður lífeyrir.
  • Lífeyrisréttindum í árslok 2009 verður síðan breytt hlutfallslega jafnt á ársfundi á árinu 2010 þannig að staða samtryggingarsjóðs verði í jafnvægi í árslok 2009 samkvæmt niðurstöðu tryggingafræðilegrar athugunar miðað við 31. desember 2009.

<<Til baka