Beint í leiðarkerfi

Frétt

24.09.2009

Sjóðfélagafundi frestað

Ákveðið hefur verið að fresta áður boðuðum sjóðfélagafundi til 29. október. Fundinum er frestað til að gefa sjóðfélögum lengri tíma til að kynna sér tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins. Vegna tillagna um breytingar á samtryggingarsjóði hefur einnig verið ákveðið að breyta tillögu um að Eftirlaunasjóður starfsmanna Glitnis banka hf. sameinist Almenna lífeyrissjóðnum og leggja til að sjóðirnir sameinist þann 31. desember 2009 en ekki 1. október eins og áður var stefnt að.

Sjóðfélagafundur 29. október
Almenni lífeyrissjóðurinn efnir til sjóðfélagafundar á Hilton Nordica Hótel fimmtudaginn 29. október nk. kl. 17:15.

Dagskrá.
  1. Fundarsetning.
  2. Skýrsla stjórnar um rekstur og afkomu Almenna lífeyrissjóðsins.
  3. Tillaga og ákvörðun um sameiningu Almenna lífeyrissjóðsins og Eftirlaunasjóðs starfsmanna Glitnis banka hf.
  4. Tillögur um breytingar á samþykktum.
  5. Önnur mál.

Þetta er þriðji sjóðfélagafundurinn sem Almenni lífeyrissjóðurinn efnir til eftir að efnahagsáfallið skall á með falli viðskiptabankanna í október 2008. Sjóðurinn hefur líkt og flestir aðrir fjárfestar orðið fyrir eignarýrnun sem hefur haft áhrif á afkomu hans á þessu og síðasta ári. Á fundinum verða gefnar upplýsingar um stöðu sjóðsins og horfurnar framundan.

Tillaga um breytingar á samtryggingarsjóði
Þegar Lífeyrissjóður lækna og Almenni lífeyrissjóðurinn sameinuðust í ársbyrjun 2006 var fyrirkomulagi samtryggingarsjóðs breytt og eignum eldri samtryggingarsjóða skipt á milli þriggja deilda (eftirlaunadeildar, tryggingadeildar og lífeyrisdeildar). Efnahagshrunið á Íslandi árið 2008 og 2009 hefur leitt í ljós að forsendur sem voru til grundvallar við skiptingu eigna á milli deilda samtryggingarsjóðsins stóðust ekki.

Vegna þessa hefur stjórn Almenna lífeyrissjóðsins ákveðið að leggja til að samþykktum sjóðsins verði breytt og að sjóðurinn taki aftur upp fyrra fyrirkomulag samtryggingarsjóðs. Í því felst að eignir deilda samtryggingarsjóðsins verða sameinaðar og lífeyrisréttindi endurreiknuð frá árinu 2006. Tilgangurinn með þessari breytingu er að efla sjóðinn til að takast á við efnahagshrunið og jafna afleiðingum þess á milli sjóðfélaga.

Á sjóðfélagafundi þann 29. október er lagt til að réttindi í sameinuðum samtryggingarsjóði verði eftirfarandi:
  • Ellilífeyrisréttindi sjóðfélaga í samtryggingarsjóði vegna iðgjalda á tímabilinu 1.1. 2006 til 31.12.2009 verða endurreiknuð samkvæmt réttindatöflu örorku vegna elli- og örorkuréttinda á hverjum tíma.
  • Endurreiknuð og áunnin ellilífeyrisréttindi 31.12.2009 lækka um 10%. Réttindi núverandi ellilífeyrisþega breytast ekki við þessa aðgerð.
  • Áunnin tryggingaréttindi 1. janúar 2006 eru örorku-, maka- og fjölskyldulífeyrisréttindi. Réttindin lækka um 10% en breytast að öðru leyti ekki. Barnalífeyrisréttindi breytast ekki.
  • Réttindi ellilífeyrisþega sem hafa hafið töku ellilifeyris á tímabilinu frá 1. janúar 2006 til 31. desember 2009 verða endurreiknuð og leiðrétt ef endurreiknuð réttindi reynast hærri heldur en áður úrskurðaður lífeyrir.
  • Lífeyrisréttindum í árslok 2009 verður síðan breytt hlutfallslega jafnt þannig að staða samtryggingarsjóðs verði í jafnvægi í árslok 2009 samkvæmt niðurstöðu tryggingafræðilegrar athugunar miðað við 31. desember 2009. Breytingin verður lögð fram á ársfundi á árinu 2010.
Tillögur um breytingar á samþykktum.

Vikulegir rabbfundir í október
Almenni lífeyrissjóðurinn mun í október halda vikulega rabbfundi á skrifstofu sjóðsins til að kynna þessar tillögur. Fundirnir verða haldnir í húsnæði sjóðsins í Borgartúni 25, 5. hæð. Fundarherbergið okkar tekur um 30 manns og verða sjóðfélagar að skrá þátttöku. Ef þátttaka verður meiri munum við halda annan fund við fyrsta tækifæri.

Áformaðir rabbfundir í október

Miðvikudagur 7. október kl. 8:30. Skrá þáttöku.
Miðvikudagur 14. október kl. 16:30.Skrá þáttöku.
Miðvikudagur 21. október kl. 16:30. Skrá þáttöku.
Miðvikudagur 28. október kl. 8:30. Skrá þáttöku.

Við erum líka tilbúin að taka á móti sjóðfélögum sem vilja koma í heimsókn og ræða málin á öðrum tíma. Einnig erum við tilbúin að koma á vinnustaði sé þess óskað. Hringið í síma 510-2500 eða sendið póst á almenni@almenni.is


<<Til baka