05.10.2009
Rabbfundur á miðvikudag
Almenni lífeyrissjóðurinn mun í október halda vikulega rabbfundi á skrifstofu sjóðsins til að kynna tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins sem verða lagðar fram á sjóðfélagafundi 29. október 2009. Fundirnir verða haldnir í húsnæði sjóðsins í Borgartúni 25, 5. hæð. Fundarherbergið okkar tekur um 30 manns og verða sjóðfélagar að skrá þátttöku. Ef þátttaka verður meiri munum við halda annan fund við fyrsta tækifæri.
Fyrsti fundurinn verður miðvikudaginn 7. október og hefst hann kl. 8:30. Skráið þátttöku hér.
Aðrir áformaðir rabbfundir í október:
Miðvikudagur 14. október kl. 16:30.
Skrá þáttöku.
Miðvikudagur 21. október kl. 16:30.
Skrá þáttöku.
Miðvikudagur 28. október kl. 8:30.
Skrá þáttöku.
Við erum líka tilbúin að taka á móti sjóðfélögum sem vilja koma í heimsókn og ræða málin á öðrum tíma. Einnig erum við tilbúin að koma á vinnustaði sé þess óskað. Hringið í síma 510-2500 eða sendið póst á almenni@almenni.is
<<Til baka