Beint í leiðarkerfi

Frétt

03.11.2009

Greiðslujöfnun lána

Frumvarp um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins var samþykkt frá Alþingi 23. október sl. og taka lögin gildi 1. nóvember. Þar með hafa orðið breytingar á lögum um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga nr. 63/1985 sem mikilvægt er að fólk kynni sér til hlítar.

Þak á greiðslujöfnun lána – lenging vegna greiðslujöfnunar verður að hámarki 3 ár

Nýmæli lagabreytinganna felst í því að sett er þak á greiðslujöfnun fasteignaveðlána þannig að lán lengjast að hámarki um þrjú ár vegna greiðslujöfnunar umfram gildandi lánasamning. Ef einhverjar eftirstöðvar eru af láninu að þeim tíma liðnum falla þær niður.

Sjálfkrafa greiðslujöfnun frá og með gjalddaga í desember næstkomandi

Lagabreytingin felur einnig í sér að öll verðtryggð fasteignaveðlán sem eru í skilum fara sjálfkrafa í greiðslujöfnun frá og með gjalddaga í desember nema lántaki sæki sérstaklega um að svo verði ekki. Tilkynning um það þarf að berast Almenna lífeyrissjóðnum eigi síðar en 20. nóvember. Bent skal á að þótt lán sé komið í greiðslujöfnun getur lántaki hvenær sem er sagt sig frá henni með tilkynningu til lánveitanda sem þarf að berast í síðasta lagi 10 dögum fyrir næsta gjalddaga lánsins.

Áætlað er að með greiðslujöfnun verði greiðslubyrði af láni í desember um 17% lægri en ella.

Lán í vanskilum

Sjálfvirk greiðslujöfnun nær einungis til verðtryggðra fasteignaveðlána sem eru í skilum. Ef lán er í vanskilum er því eindregið beint til lántaka að setja sig í samband við sjóðinn og leita samninga um leiðir til að koma láninu í skil. Þegar lán er komið í skil getur viðkomandi fengið greiðslujöfnun á lánið.

Lán í frystingu

Lán sem eru í fystingu í dag verða sjálfkrafa sett í greiðslujöfnun þegar frystingin rennur út og þarf því ekki að sækja um það sérstaklega.

Upplýsingagjöf

Almenni lífeyrissjóðurinn mun fyrir 15. nóvember senda bréf til sjóðfélaga sinna vegna lána sem fara sjálfkrafa í greiðslujöfnun með nánari upplýsingum um greiðslujöfnunina og áhrif hennar á greiðslubyrði lána. Sjóðfélagar geta einnig nálgast almennar upplýsingar um greiðslujöfnun á vefsíðunni Island.is

Að segja sig frá greiðslujöfnun

Þeir sem ekki kjósa greiðslujöfnun þurfa að tilkynna það sjóðnum eigi síðar en 19. nóvember vegna gjalddaga í desember. 

Þótt lán sé komið í greiðslujöfnun getur lántaki hvenær sem er sagt sig frá henni með tilkynningu til sjóðsins sem þarf að berast eigi síðar en 10 dögum fyrir næsta gjalddaga lánsins.

Þeir sem hafa sagt sig frá greiðslujöfnun en sjá síðar að þeir kunni að hafa hag af henni, til dæmis vegna breyttra aðstæðna, geta sótt um að fá greiðslujöfnun.


<<Til baka