03.11.2009
Breytingar samþykktar
Breytingar samþykktar, sameining felld
Almenni lífeyrissjóðurinn efndi til sjóðfélagafundar á Hilton Reykjavík Nordica í gær. Á fundinum lagði stjórn sjóðsins fram skýrslu um rekstur og afkomu sjóðsins og tillögur um breytingar á samþykktum. Fundurinn var frekar fámennur en alls mættu 80 sjóðfélagar á fundinn eða fyrir samtals 1,5% af séreignarsjóði og 2,6% af samtryggingarsjóði. Tveir sjóðfélagar mættu með umboð fyrir 7.453.528 kr. af séreignarsjóði og 71.825.054 kr. af samtryggingarsjóði.
Rekstur og afkoma
Á fundinum gerði stjórn sjóðsins grein fyrir rekstri og afkomu sjóðsins. Páll Ásgeir Pálsson, formaður stjórnar, sagði frá aðgerðum stjórnar vegna efnahagshrunsins og Gunnar Baldvinsson, framkvæmdastjóri, fór yfir eignir og ávöxtun.
Ræða Páls
Glærur um eignir og ávöxtun
Fundargerð
Samþykktir (fylgiskjal fundargerðar)
Breytingar á samtryggingarsjóði
Tillögur um breytingar á samtryggingarsjóði voru samþykktar á sjóðfélagafundi í gær. Atkvæði um tillöguna greiddu sjóðfélagar í samtryggingarsjóði. Tillögurnar voru samþykkar með 96% greiddra atkvæða eða fyrir samtals 647.515.213 kr. en nei sögðu 4% eða 27.759.574 kr.
Með breytingunum er sjóðurinn að bregðast við efnahagshruninu en vegna þess hafa eignir sjóðsins lækkað. Breytingarnar eru:
- Deildir samtryggingarsjóðs verða sameinaðar.
- Ellilífeyrisréttindi sjóðfélaga í samtryggingarsjóði vegna iðgjalda á tímabilinu 2006 til 2009 verða endurreiknuð. Við útreikninginn verða ellilífeyrisréttindi hækkuð um 6,9% sem er sama hækkun og lífeyrisþegar fengu árin 2006 og 2007.
- Réttindi ellilífeyrisþega sem hafa hafið töku ellilífeyris á tímabilinu frá 1. janúar 2006 til 31.12.2009 verða endurreiknuð og leiðrétt ef endurreiknuð réttindi reynast hærri heldur en áður úrskurðaður lífeyrir.
- Réttindi lækka um 10%
- Endurreiknuð og áunnin ellilífeyrisréttindi 31.12.2009 lækka um 10%.
- Réttindi núverandi ellilífeyrisþega breytast ekki við þessa aðgerð
- Áunnin örorku-, maka- og fjölskyldulífeyrisréttindi lækka um 10%
- Barnalífeyrisréttindi breytast ekki
- Stefnt er að því að setja sjóðinn í jafnvægi eftir tryggingafræðilegt uppgjör 31.12.2009. Til að ná jafnvægi þarf að lækka réttindi aftur. Staða sjóðsins eftir niðurstöðu tryggingafræðilegrar athugunar 31. desember 2009 ræður hversu miklar réttindabreytingar verða til viðbótar en lækkunin gæti verið á bilinu 10%-14%.
Tillaga um sameiningu felld
Tillaga um sameiningu Eftirlaunasjóðs starfsmanna Glitnis og Almenna lífeyrissjóðsins var felld á sjóðfélagafundinum þar sem 57% greiddra atkvæða samþykktu tillöguna en samkvæmt samþykktum þarf 67% greiddra atkvæða. Ekkert verður því af sameiningu sjóðanna um áramótin.
Atkvæði um tillöguna greiddu sjóðfélagar í samtryggingarsjóði. Já sögðu sjóðfélagar með 347.617.234 kr. en nei sögðu sjóðfélagar með 265.660.701 kr.
Nýjar ávöxtunarleiðir og kostnaður við að breyta um ávöxtunarleiðir
Á fundinum var samþykkt með handauppréttingu að bæta ríkissöfnum sjóðsins formlega við samþykktir sjóðsins en þau voru stofnuð í mars. Söfnin fjárfesta í löngum og stuttum ríkisskuldabréfum. Mikil eftirspurn er nú eftir öruggum skuldabréfum og vill sjóðurinn bregðast við með því að bjóða sjóðfélögum að fjárfesta í ríkisskuldabréfum. Nánari upplýsingar um söfnin eru á heimasíðu sjóðsins, sjá Ríkissafn -Langt og Ríkissafn - Stutt.
Á fundinum var einnig samþykkt að sjóðfélagar greiði lágmarkskostnað við að skipta um ávöxtunarleiðir þar sem það kostar að selja verðbréf og færa eignir milli leiða. Atkvæði um tillöguna greiddu sjóðfélagar í séreignarsjóði. Tillögurnar voru samþykkar með 85% greiddra atkvæða eða fyrir samtals 452,963,733 kr. en nei sögðu 15% eða 81.331.762 kr.
Fjármálaráðuneyti þarf að staðfesta
Samþykktir sjóðsins verða núnar sendar til fjármálaráðaneytisins til staðfestingar. Ákvæði um samtryggingarsjóð taka gildi um áramótin en breytingar á séreignarsjóði um leið og ráðuneytið staðfestir þær.