04.11.2009
Viljayfirlýsing um nýjan Landspítala
Í dag verður undirrituð viljayfirlýsing af hálfu ríkisstjórnarinnar og nokkra lífeyrissjóða, þ.a.m. Almenna lífeyrissjóðsins, um fjármögnun og byggingu nýs Landspítala. Yfirlýsingin sýnir fram á stuðning við verkefnið og skapar nauðsynlegan trúverðugleika. Lífeyrissjóðirnir lýsa því yfir að þeir eru reiðubúnir til að koma að fjármögnun sem felur fyrst og fremst í sér hönnun og framkvæmd við nýbyggingar og langtímafjármögnun.
Viljayfirlýsingin felur ekki í sér fjárhagslega skuldbindingu fyrir lífeyrissjóðina og aðkoma þeirra að fjármögnun verkefnisins er háð því að arðsemi og áhætta verði ásættanleg. Aðilar eru sammála um að kanna ítarlega hvort og með hvaða hætti lífeyrissjóðir geti komið að fjármögnun verkefnisins.
Verkefni Landspítala verða umfangsmikil og af hæstu gæðum á sviði sjúkrahúsþjónustu, rannsókna og menntunar. Markmið verkefnisins er að byggingarnar bjóði upp á aðlaðandi og öruggt sjúkrahús- og vinnuumhverfi fyrir sjúklinga, aðstandendur og starfsmenn. Umhverfi sjúklinga skal endurspegla umhyggju, traust og gæði. Sameining Landspítala við Hringbraut í nýju húsnæði mun að mati stjórnvalda skila 6% lækkun rekstrarkostnaðar spítalans. Ávinningur af því að byggja nýjan Landspítala sameina rekstur Landspítala er metinn á 19 milljarða króna á núvirði til næstu 40 ára. Ávinningur lífeyrissjóðanna af verkefninu er örugg ávöxtun fjármuna til langs tíma.
<<Til baka