11.11.2009
Bréf vegna greiðslujöfnunar
Greiðslujöfnun verður sjálfkrafa sett á öll verðtryggð fasteignalán frá og með gjalddaga í desember 2009. Áætlað er að með greiðslujöfnun muni greiðslubyrði lækka um allt að 17% en greiðslubyrði er mismunandi eftir eðli lána og ákvæðum í lánasamningum. Auglýsingar varðandi greiðslujöfnunina hafa birst í blöðum undanfarið.
Kostir greiðslujöfnunar
· Léttari greiðslubyrði sem er líklegri til að henta betur við núverandi efnahagsaðstæður.
· Afborganir fylgja greiðslujöfnunarvísitölu sem tekur mið af atvinnustigi og launaþróun.
· Það kostar ekkert að setja lán í greiðslujöfnun og hægt er að segja greiðslujöfnuninni upp hvenær sem er.
Ókostir greiðslujöfnunar
· Möguleiki á að lán lengist en þó aldrei lengur en sem nemur þremur árum af upprunalegum lánstíma.
· Greiðslujöfnun getur falið í sér hærri kostnað í formi vaxta og verðbóta.
· Eignarmyndun í húsnæði getur orðið hægari til skamms tíma.
Þeir sem ekki vilja fá greiðslujöfnun á lán sín verða að tilkynna það lánveitanda sínum eigi síðar en 19. nóvember 2009 vegna gjalddaga í desember. Eftir að lán er komið í greiðslujöfnun getur lántaki sagt sig frá henni með tilkynningu til lánveitanda í síðasta lagi 10 dögum fyrir næsta gjalddaga lánsins.
Sjá nánari upplýsingar um greiðslujöfnun hér.
<<Til baka