Beint í leiðarkerfi

Frétt

09.12.2009

Næsti rabbfundur

Síðasti rabbfundur fyrir áramót var haldinn í morgun og var umræðuefnið skattar og ávöxtun. Á fundinum fóru starfsmenn yfir tillögur ríkisstjórnar um skattabreytingar og ræddu um áhrif þeirra á sjóðfélaga. Einnig var farið yfir ávöxtun sjóðsins á árinu og rætt um horfur framundan. Næsti fundur verður haldinn 28. janúar nk. en á þeim fundi verður farið yfir ávöxtun 2009, rætt um horfur 2010 og kynnt ný fjárfestingarstefna undir yfirskriftinni: Ávöxtun 2009.

Almenni lífeyrissjóðurinn hefur á þessu ári haldið átta svokallaða rabbfundi fyrir sjóðfélaga í húsnæði sjóðsins í Borgartúni 25. Tilgangurinn með fundunum er að gefa sjóðfélögum kost á að hitta starfsmenn og spyrja spurninga eða ræða um málefni sjóðsins. Með fundunum viljum við auka gegnsæi, efla umræður og bjóða sjóðfélögum að koma á framfæri ábendingum eða hugmyndum.

Ætlunin er að halda rabbfundi mánaðarlega yfir vetrartímann og eru þeir eru auglýstir á heimasíðu sjóðsins, www.almenni.is. Fundar­herbergið okkar tekur um 30 manns og verða sjóðfélagar að skrá þátttöku. Ef þátttaka verður meiri munum við halda annan fund við fyrsta tækifæri.

Skrá þátttöku á rabbfundi 28. janúar 2010.
<<Til baka