Beint í leiðarkerfi

Frétt

10.12.2009

Kröfur á bankana

Þessa dagana eru birtast kröfulýsingar í bú gömlu bankanna. Kröfur í Landsbankann voru gerðar opinberar í nóvember og Glitnis í desember. Kröfulýsingarfrestur í bú Kaupþings rennur út lok desember.

Almenni lífeyrissjóðurinn gerði kröfu í bú Landsbankans fyrir um 3,5 milljarða og í bú Glitnis fyrir um 9,7 milljarða. Sjóðurinn mun einnig gera kröfu í bú Kaupþings. Kröfurnar eru tilkomnar vegna margra ára viðskipta við bankana. Uppistaða krafnanna byggja annars vegar á kröfum vegna skuldabréfa sem bankarnir gáfu út og hins vegar á kröfum vegna afleiðsamninga sem sjóðurinn keypti til draga úr sveiflum á verðmæti erlendra verðbréfa í íslenskum krónum. Krafa í þrotabú Glitnis er mun hærri af því bankinn var atkvæðamestur af gömlu bönkunum í útgáfu skuldabréfa og vegna afleiðusamninga sem Almenni lífeyrissjóðurinn gerði við Glitni.

Skuldabréf banka og sparisjóða voru hluti af fjárfestingarstefnu Almenna lífeyrissjóðsins. Skuldabréfin voru yfirleitt verðtryggð og með hærri ávöxtunarkröfu en á ríkisskuldabréfum. Glitnir var virkastur á þessum markaði og var hlutdeild bankans í útgáfu bankaskuldabréfa um 50%, Kaupþings 39% og Landsbankans um 11%. Hluti af skuldabréfunum voru víkjandi fyrir almennum kröfum.

Almenni lífeyrissjóðurinn keypti afleiðusamninga af Glitni til að draga úr sveiflum í ávöxtun af erlendum verðbréfum og til að verja sjóðinn fyrir falli á erlendum verðbréfum í íslenskum krónum. Lífeyrissjóðir eiga í viðræðum við skilanefndir bankanna um uppgjör samninganna og mun niðurstaða þeirra viðræðna hafa áhrif á endanlegar kröfufjárhæðir. Kröfur í bú Glitnis vegna samninganna eru ítrustu kröfur lífeyrissjóðsins en ágreiningur er um uppgjörsgengi samninganna.

Slitastjórnir bankanna munu nú hefjast handa við að meta kröfur í bú þeirra og tilkynna síðan hvaða kröfur verða samþykktar. Búast má við að þessi vinna taki nokkra mánuði. Í framhaldi af því verður kröfuhöfum gefinn andmælafrestur og geta kröfuhafar, sem fá ekki kröfur sínar samþykktar, mótmælt úrskurði slitastjórnar. Búast við að það taki langan tíma að afgreiða kröfur endanlega og svo verða eflaust einhver málaferli í framhaldi af því.


<<Til baka