Beint í leiðarkerfi

Frétt

22.12.2009

Líftrygging fellur niður

Þessa dagana eru læknar, sem voru virkir greiðendur í Lífeyrissjóði lækna árið 2005, að fá bréf frá Sjóvá-líftryggingum hf. um að hóplíftrygging, sem var keypt við sameiningu Lífeyrissjóðs lækna og Almenna lífeyrissjóðsins, sé fallin niður. Samkvæmt samkomulagi var Glitnir banki hf. greiðandi tryggingarinnar. Bankinn er nú í slitameðferð og getur ekki greitt af tryggingunni. Þar sem Almenni lífeyrissjóðurinn getur ekki tekið trygginguna yfir fellur hún niður nema ef sjóðfélagi velur að viðhalda henni sjálfur.

Við sameiningu Lífeyrissjóðs lækna og Almenna lífeyrissjóðsins 2006 breyttust reglur um makalífeyri hjá læknum. Við fráfall sjóðfélaga í Lífeyrissjóði lækna fékk eftirlifandi maki greiddan ævilangan makalífeyri en í Almenna lífeyrissjóðnum eru réttindin tímabundin. Læknar héldu áunnum réttindum til ævilangs makalífeyris en eftir sameiningu ávinna þeir sér rétt á tímabundnum makalífeyrisréttindu.

Til að hjálpa sjóðfélögum að aðlagast breyttri samsetningu lífeyrisréttinda var ákveðið að leita til rekstraraðila sjóðanna um að kaupa hóp­líftryggingu af Sjóvá-Almennum líftryggingum hf. fyrir virka sjóðfélaga í Lífeyrissjóði lækna árslok 2005. Stefnt var að því að tryggingin myndi gilda í 10 ár eða til 31. desember 2015 og trygging einstakra sjóðfélaga til 67 ára aldurs.

Almenni lífeyrissjóðurinn hefur ekki heimild til að kaupa líftryggingar halda einstökum sjóðfélögum eða hluta sjóðfélaga. Sjóðurinn getur því ekki tekið við að greiða trygginguna.

<<Til baka