Beint í leiðarkerfi

Frétt

22.12.2009

Séreignarsparnaður opinn áfram

Alþingi samþykkti í gær að heimila frekari opnun á viðbótarlífeyrissparnaði og geta sjóðfélagar tekið út samanlagt 2,5 milljónir króna af inneign sinni. Heimildin miðast við inneign við gildistöku laganna 1. janúar 2010. Mánaðarleg útborgun er áfram kr. 111.111 og ræðst úgreiðslutíminn af heildarfjárhæð útgreiðslunnar. Heimildin gildir til 31 mars 2011.

Umsóknarfrestur til að sækja um útgreiðslu úr Almenna lífeyrissjóðnum er 19. hvers mánaðar og er greitt út fyrsta virka dag í mánuði. Hægt er að nálgast umsóknareyðublað hér. Athugið að tekjuskattur er greiddur af útborgunum eins og um venjulegar launatekjur sé að ræða. Sjóðurinn reiknar með að sjóðfélagar greiði tekjuskatt af lægsta skattþrepi 37,2% en það er á ábyrgð umsækjanda að láta sjóðinn vita hvort skattgreiðslur eigi að vera í hærra skattþrepi. Ef greiddur er of lágur tekjuskattur er það gert upp í ágúst næsta ári á eftir með 2,5% álagi.

Við viljum vekja athygli á að skilyrði fyrir úttekt er að inneign hafi myndast vegna viðbótarlífeyrissparnaðar sem hefur orðið til frá 1. janúar 1999 til 31. desember 2009. Viðbótarlífeyrissparnaður er skilgreindur sem sparnaður þegar launþegi greiðir umfram lágmarksiðgjald í lífeyrissjóð og er yfirleitt 2 til 4% af launum ásamt mótframlagi launagreiðanda sem bætist við. Inneign sem hefur myndast vegna skyldulífeyrissparnaðar er ekki laus. Lágmarksiðgjald í Almenna lífeyrissjóðinn er 12% og af því greiðist þriðjungur eða 4% af launum í séreignarsjóð. Sá hluti inneignar sem hefur myndast með þessum hætti er ekki laus samkvæmt lögum um tímabundna opnun séreignarsparnaðar.


<<Til baka