23.12.2009
Skattabreytingar um áramót
Alþingi samþykkti umtalsverðar breytingar á skattkerfinu fyrir jól.
Þrjú þrep fyrir tekjuskatt
Í stað tveggja þrepa (fyrir) tekjuskatts (almennt þrep 37.2% og 8% hátekjuskatts á laun yfir 700.000 kr. á mánuði) eru tekjuskattsþrepin nú þrjú.
- Þrep 1: 37,2% tekjuskattur á tekjur undir 200.000 kr.
- Þrep 2: 40,1% tekjuskattur á tekjur frá 200.000 til 650.000 kr.
- Þrep 3: 46,4% tekjuskattur á tekjur yfir 650.000 kr.
Á heimasíðu Ríkisskattstjóra er hægt að sjá hversu mikið er greitt í skatta miðað við mismunandi tekjur. Bein slóð er hér.
Í nýjum lögum um tekjuskatt er gert ráð fyrir að launþegi með tekjur sem ná inn í skattþrep 3 geti flutt hluta þeirra í skattþrep 2 ef makinn er með tekjur í skattþrepi 2 eða neðar. Hámark sem má flytja svona á milli skattþrepa er helmingurinn af því bili sem vantar upp á að laun makans nái 650.000 krónum eða 225.000 krónur, hvort sem er lægra. Það skal áréttað að þetta á eingöngu við ef annar aðilinn er með tekjur í skattþrepi 3 en hinn lægra. Ef hvorugur aðilinn nær skattþrepi 3 er ekki hægt að flytja á milli skattþrepa.
Það er ábyrgð hvers og eins einstaklings að láta vita í hvaða skattþrepi tekjuskattsgreiðslur eiga að vera. Ef greiddur er of lágur tekjuskattur verður mismunurinn gerður upp eftirá við álagningu í ágúst á næsta ári með 2,5% álagi.
Fjármagnstekjuskattur hækkar
Fjármagnstekjuskattur hækkar úr 15% í 18%. Ekki er greiddur fjármagnstekjuskattur af fyrstu 100.000 kr. Rétt er að minna á að ekki er greiddur fjármagnstekjuskattur af vaxtatekjum í séreignarsparnaði.
Dreifing útborgunar úr séreignasjóði borgar sig
Með þessum breytingum verður hagkvæmara að taka inneign úr séreignarsjóði með jöfnum greiðslum og dreifa úttekt á lengri tíma. Þannig geta sjóðfélagar komið í veg fyrir að lenda í hærra tekjuskattsþrepi auk þess sem þeir greiða ekki fjármagnstekjuskatt af vaxtatekjum.
Hámark á framlag launagreiðanda
Til viðbótar við breytingar á álagningarprósentum var sett þak á framlag launagreiðanda í lífeyrissjóð (skyldusparnaður) og til viðbótarlífeyrissparnaðar. Ef framlag launagreiðanda fer yfir 12% af launum (lágmarksiðgjald í lífeyrissjóð samkvæmt lögum) og reiknuðu endurgjaldi auk 2.000.000 kr. á ári þá telst það til tekna (á launþega) og þarf launþegi að greiða tekjuskatt af því sem er umfram.
Ekki verður greitt auðlegðargjald af séreign
Með breytingum á skattalögunum var samþykkt að leggja svokallað auðlegaðargjald á einstaklinga sem eiga 90 milljónir skuldlausar eignir eða meira og hjón sem eiga 120 milljónir eða meira. Gjaldið verður 1,25%. Inneign í séreignarsjóði telst ekki með eignum í skattstofni auðlegðargjaldsins.
<<Til baka