Beint í leiðarkerfi

Frétt

23.12.2009

Ný fjárfestingarstefna

Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins hefur samþykkt nýja fjárfestingarstefnu fyrir sjóðinn fyrir árið 2010. Stefnan er mjög ítarleg og er nokkuð breytt frá fyrri stefnu m.a. vegna efnahagsáfallsins á Íslandi 2008 og 2009. Almenni lífeyrissjóðurinn hefur brugðist við áfallinu með því að að fjölga ávöxtunarleiðum sem fjár­festa í innlánum og ríkisskuldabréfum. Sjóðurinn hefur einnig aukið vægi ríkisskuldabréfa í blönduðum eignasöfnum sjóðsins samhliða því að auka áhættudreifingu með því að lækka hámarksvægi á einstaka útgefendur.

Í fjárfestingarstefnu fyrir árið 2010 eru til viðbótar gerðar eftirfarandi breytingar. 

  • Stefnt er að sameiningu Ævisafns IV og Innlánasafns þegar skuldabréf í eigu Ævisafns IV eru uppgreidd eða hægt er að selja bréfin. 
  • Samsetning skuldabréfasafna er breytt og vægi ríkisskuldabréfa, skuldabréfa sveitarfélaga og innlána aukið á kostnað annarra skuldabréfa. 
  • Erlend ríkisskuldabréf eru nú hluti af blönduðum verðbréfasöfnum. 
  • Ákveðið hefur verið að sameina deildir samtryggingarsjóðs. Ný fjárfestingarstefna er fyrir sameinaðan samtryggingarsjóð. 
  • Sjóðurinn hefur skilgreint viðmiðanir til hliðsjónar við val á verðbréfum sem eru útgefin af innlendum útgefendum öðrum en ríkinu. Tilgangurinn er að að auka gegnsæi þannig að sjóðfélagar viti hvaða skilyrði sjóðurinn hefur til viðmiðunar við val á öðrum verðbréfum en ríkisskuldabréfum. Í viðmiðunum eru einnig ákvæði um skilmála sem sjóðurinn fer fram á að séu í skuldabréfum fyrirtækja og sveitarfélaga.

Sjóðfélagar geta lesið stefnuna hér. Fjárfestingarstefnan verður kynnt sérstaklega á rabbfundi sem er boðaður 28. janúar.


<<Til baka