04.01.2010
Breytingar á samtryggingarsjóði
Fjármálaráðuneytið hefur staðfest breytingar á samþykktum Almenna lífeyrissjóðsins sem voru samþykktar á sjóðfélagafundi 29. október 2009. Samþykktirnar tóku gildi um áramótin en með þeim verða nokkrar breytingar á samtryggingarsjóðnum og lífeyrisréttindum.
Deildir sameinast og ellilífeyrir endurreiknaður
Deildir samtryggingarsjóðs (eftirlaunadeild, tryggingadeild og lífeyrisdeild) hafa nú sameinast í einn samtryggingarsjóð sem greiðir elli- og áfallalífeyri (örorku-, maka- og barnalífeyri). Við sameiningu deildanna verða geymd ellilífeyrisréttindi (réttindi þeirra sem hafa ekki hafið töku ellilífeyris) endurreiknuð.
-
Geymd ellilífeyrisréttindi verða endurreiknuð vegna greiddra iðgjalda á árunum 2006-2009.
-
Við útreikninginn verður stuðst við réttindatöflu elli- og örorkulífeyris á hverjum tíma en auk þess verða ellilífeyrisréttindin hækkuð um 6,9% sem er sama hækkun og lífeyrisþegar fengu árin 2006 og 2007.
-
Endurútreikningur ellilífeyrisréttinda leiðir til þess að ellilífeyrisréttindi hækka til samræmis við örorkuréttindi sem hafa hækkað um 53% frá því í ársbyrjun 2006. Vegna eldra fyrirkomulags samtryggingarsjóðs hafði áætlaður ellilífeyrir dregist verulega aftur úr örorkulífeyrisréttindum og var nálægt 40% af örorkulífeyri.
Vegna endurútreiknings á ellilífeyrisréttindum munu réttindi í samtryggingarsjóði ekki birtast á yfirlitum í netbanka fyrstu vikurnar í janúar. Við biðjumst velvirðingar á þessu en stefnt er að því að endurútreiknuð ellilífeyrisréttindi verði aðgengileg á sjóðfélagavef í lok janúar.
Réttindi ellilífeyrisþega sem hafa hafið töku ellilífeyris á tímabilinu frá 1. janúar 2006 til 31.12.2009 verða einnig endurreiknuð og leiðrétt ef endurreiknuð réttindi reynast hærri heldur en áður úrskurðaður lífeyrir.
Breytingar á lífeyrisréttindum
Á sjóðfélagafundinum var einnig samþykkt að lækka lífeyrisréttindi um 10% um áramótin.
- Lækkunin gildir jafnt fyrir þá sem njóta lífeyris úr sjóðnum og þá sem eiga geymd lífeyrisréttindi (hafa ekki hafið töku lífeyris).
- Ellilífeyrisgreiðslur breytast þó ekki þar sem ellilífeyrir lækkaði um sama hlutfall í apríl 2009.
- Örorku- og makalífeyrisgreiðslur lækka um 10% þann 1. janúar 2010.
- Barnalífeyrisgreiðslur breytast ekki.
Lækkun réttinda er óhjákvæmileg vegna tryggingarfræðilegrar stöðu sjóðsins sem hefur versnað vegna efnahagsáfallsins. Á sjóðfélagafundinum var einnig samþykkt að stefna að því að setja sjóðinn í jafnvægi eftir tryggingafræðilegt uppgjör þann 31. desember 2009. Til þess þarf að öllum líkindum að lækka réttindi aftur í júní og gæti viðbótarlækkun verið á bilinu 10%-14%.
Almenni lífeyrissjóðurinn harmar að til þessarar lækkunar þurfi að koma en vill benda á að frá því í ársbyrjun 2006 hafa örorku- og makalífeyrisgreiðslur hækkað um 53% og ellilífeyrisgreiðslur hækkað um 48%. Á sama tíma hefur vísitala launa hækkað um 29%.
Nýjar samþykktir Almenna lífeyrissjóðsins má lesa hér.
<<Til baka