Beint í leiðarkerfi

Frétt

25.01.2010

Rabbfundur um ávöxtun

Fimmtudaginn 28. janúar 2010 kl. 8:30 -9:30 efnir Almenni lífeyrissjóður til rabbfundar fyrir sjóðfélaga undir heitinu  Ávöxtun 2009. Á fundinum verður farið yfir ávöxtun 2009, rætt um horfur framundan og kynnt ný fjárfestingarstefna.  Fundurinn verður haldinn í fundarherbergi sjóðsins í Borgartúni 25, 5. hæð. Áhugasamir geta skráð þáttöku á hér.


Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins samþykkti í desember nýja fjárfestingarstefnu fyrir sjóðinn fyrir árið 2010. Stefnan er mjög ítarleg og er nokkuð breytt frá fyrri stefnu m.a. vegna efnahagsáfallsins á Íslandi 2008 og 2009. Almenni lífeyrissjóðurinn hefur brugðist við áfallinu með því að að fjölga ávöxtunarleiðum sem fjár­festa í innlánum og ríkisskuldabréfum. Sjóðurinn hefur einnig aukið vægi ríkisskuldabréfa í blönduðum eignasöfnum sjóðsins samhliða því að auka áhættudreifingu með því að lækka hámarksvægi á einstaka útgefendur.  Nánar.

Um rabbfundina: Almenni lífeyrissjóðurinn hefur ákveðið að vera með reglulega rabbfundi í húsnæði sjóðsins í Borgartúni 25 þar sem sjóðfélagar geta hitt starfsmenn og spurt spurninga eða rætt um málefni sjóðsins. Fundarherbergið okkar tekur um 30 manns og verða sjóðfélagar að skrá þátttöku. Ef þátttaka verður meiri munum við halda annan fund við fyrsta tækifæri.



<<Til baka