Beint í leiðarkerfi

Frétt

01.02.2010

Næsti rabbfundur

Næsti rabbfundur Almenna lífeyrissjóðsins verður fimmtudaginn 25. febrúar 2010 kl. 8:30-9:30. Á fundinum verður kynntur nýr sjóðfélagavefur með upplýsingum um séreign og lífeyrisréttindi.

Almenni lífeyrissjóðurinn mun í febrúar opna nýja vef fyrir sjóðfélaga með læstum aðgangi að upplýsingum um inneign í séreignarsjóði og réttindi í samtryggingarsjóði og munu allir sjóðfélagar fá sent lykilorð. Afar mikilvægt er fyrir sjóðfélaga að hafa góðan aðgang að upplýsingum um inneign og lífeyrisréttindi. Markmið Almenna með sjóðfélagavefnum er að auka aðgengi sjóðfélaga að þessum upplýsingum til þess að þeir geti betur fylgst með og metið stöðu sína.

Hægt er að skrá þátttöku hér.

Um rabbfundina: Almenni lífeyrissjóðurinn hefur ákveðið að vera með reglulega rabbfundi í húsnæði sjóðsins í Borgartúni 25 þar sem sjóðfélagar geta hitt starfsmenn og spurt spurninga eða rætt um málefni sjóðsins. Fundarherbergið okkar tekur um 30 manns og verða sjóðfélagar að skrá þátttöku. Ef þátttaka verður meiri munum við halda annan fund við fyrsta tækifæri.


<<Til baka