09.02.2010
Úrræði vegna greiðsluerfiðleika
Lenging lánstíma
Lántakendum með lán til skemmri tíma en 40 ára býðst að lengja lánstímann í allt að 40 ár frá útgáfudegi láns og lækka þannig greiðslubyrðina.
Fjölgun gjalddaga Fyrir þá sem eru með afborganir sjaldnar en á eins mánaða fresti getur verið ráðlegt að breyta í mánaðarlegar afborganir.
Láni með jöfnum afborgunum breytt í jafngreiðslulán
Lán með jöfnum afborgunum eru með nokkuð þyngri afborganir en svokölluð jafngreiðslulán og getur því verið aðstoð í því að breyta skilmálum skuldabréfa yfir í jafnar greiðslur (annuitet).
Skuldbreyting
Ef um veruleg vanskil er að ræða og ólíklegt er að önnur úrræði leysi greiðsluvandann er hægt að óska eftir að vanskil leggist við höfuðstól lánsins og bætist við þær afborganir sem eftir eru af láninu.
Frysting lána, afborgunum af láni frestað og dreift á greiðslutíma láns að frystingu lokinni
Ef um verulega greiðsluerfiðleika er að ræða og ólíklegt er að önnur úrræði leysi greiðsluvanda skuldara getur hann óskað eftir frystingu, þ.e. að greiðslum sé frestað tímabundið. Að frystingu lokinni verði greiðslum á fystingartímabilinu bætt við höfuðstól lánsins og dreift á lánstímann sem eftir.
Greiðlujöfnun: sbr. lög nr. 107 30.10.2009
Sjóðfélagar geta sótt um greiðslujöfnun til að létta greiðslubyrði fasteignaveðlána.
Greiðslujöfnun felst í því að greiðslujöfnunarvísitala er borin saman við vísitölu neysluverðs. Ef afborganir samkvæmt greiðslujöfnunarvísitölu reynast lægri en afborganir samkvæmt vísitölu neysluverðs er þeim hluta af afborgunum lánsins sem nemur mismuninum frestað þar til greiðslujöfnunarvísitalan hækkar á ný umfram vísitölu neysluverðs. Sá hluti afborgana sem frestast er færður á jöfnunarreikning sem bætist við höfuðstól lánsins og sem lántaki greiðir síðar á lánstímanum með vöxtum og verðbótum.
Greiðsluaðlögun: sbr. lög nr. 107 30.10.2009
Reglur um greiðsluaðlögun eru settar með hliðsjón af 2. gr. laga um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins, sem samþykkt voru á Alþingi 23. október 2009.
Markmið með reglunum er að einstaklingar í alvarlegum skuldavanda geti fengið skilvirka og varanlega lausn, þar sem skuldir og eignir eru lagaðar að greiðslugetu, á grundvelli einkaréttarlegs samkomulags skuldara og fjármálastofnana án aðkomu dómstóla. Aðilar á lánamarkaði hafa gert með sér samkomulag um verklagsreglur um sértæka skuldaaðlögun einstaklinga og er Almenni lífeyrissjóðurinn aðili að því samkomulagi.
Umsóknir og gögn skulu berast umsjónaraðila sem er aðalviðskiptabanki skuldara. Umsjónaraðili gerir ítarlegt greiðslumat og tillögur um greiðslu þeirra skulda sem samkomulagið nær til.
Sjá upplýsingar um úrræði fyrir einstaklinga og heimili á
www.island.is