Beint í leiðarkerfi

Frétt

19.02.2010

Sjóðfélagavefur á rabbfundi

Fimmtudaginn 25. febrúar 2010 kl. 8:30 -9:30 efnir Almenni lífeyrissjóður til rabbfundar fyrir sjóðfélaga undir heitinu Upplýsingar til sjóðfélaga. Á fundinum verður kynntur nýr sjóðfélagavefur með upplýsingum um séreign og lífeyrisréttindi. Fundurinn verður haldinn í fundarherbergi sjóðsins í Borgartúni 25, 5. hæð.

Almenni lífeyrissjóðurinn mun í febrúar opna nýja vef fyrir sjóðfélaga með læstum aðgangi að upplýsingum um inneign í séreignarsjóði og réttindi í samtryggingarsjóði og munu allir sjóðfélagar fá sent lykilorð. Afar mikilvægt er fyrir sjóðfélaga að hafa góðan aðgang að upplýsingum um inneign og lífeyrisréttindi. Markmið Almenna með sjóðfélagavefnum er að auka aðgengi sjóðfélaga að þessum upplýsingum til þess að þeir geti betur fylgst með og metið stöðu sína.

Áhugasamir geta skráð þáttöku á hér.

Um rabbfundina: Almenni lífeyrissjóðurinn hefur ákveðið að vera með reglulega rabbfundi í húsnæði sjóðsins í Borgartúni 25 þar sem sjóðfélagar geta hitt starfsmenn og spurt spurninga eða rætt um málefni sjóðsins. Fundarherbergið okkar tekur um 30 manns og verða sjóðfélagar að skrá þátttöku. Ef þátttaka verður meiri munum við halda annan fund við fyrsta tækifæri.


<<Til baka