26.02.2010
Um ávöxtun Innlánasafnsins
Innlánasafnið fjárfestir eingöngu í innlánum banka og sparisjóða. Stærstur hluti safnsins er bundinn í verðtryggðum innlánum eða um 94%. Innlánasafnið dreifir innlánum á fimm innlánsstofnanir; Íslandsbanka, Arion banka, MP banka, Byr sparisjóð og Landsbankann.
Árið 2009 gaf Innlánasafnið góða ávöxtun, hækkaði um 15,2% sem jafngildir 6,0% raunávöxtun. Vaxtastig hérlendis var hátt á árunum 2008 og 2009 en hefur lækkað hratt undanfarna mánuði. Raunvextir á innlánsreikningum safnsins eru nú að meðaltali um 4,1%. Við þá vexti bætist verðbólga, eins og hún er á hverjum tíma.
Búast má við góðri ávöxtun á Innlánasafninu í mars. Hækkun vísitölu neysluverðs á milli mars og apríl er 1,15% skv. útreikningum Hagstofu Íslands. Því má búast við allt að 1,3% hækkun á Innlánasafninu í mars.
Frá því í október 2008 hefur öllum iðgjöldum sjóðfélaga í séreignarsjóð verið ráðstafað í Innlánasafnið. Sú ráðstöfun er enn í gildi nema að sjóðfélagar hafi óskað eftir breytingu. Hægt er að velja um aðrar ávöxtunarleiðir hjá Almenna lífeyrissjóðnum. Upplýsingar um ávöxtunarleiðir eru hér og einnig geta sjóðfélagar haft samband við ráðgjafa og fengið frekari upplýsingar.
<<Til baka