12.03.2010
Yfirlit til sjóðfélaga
Almenni lífeyrissjóðurinn hefur sent sjóðfélögum yfirlit sem sýnir hreyfingar á tímabilinu 1. september til 31. desember 2009 og upplýsingar um lífeyrisréttindi og inneign í lok tímabilsins.
Með yfirlitunum fylgir með bréf með upplýsingum til sjóðfélaga.
Ný og einfaldari pappírsyfirlit / nánari upplýsingar á sjóðfélagavef
Sjóðfélagar fá nú send breytt yfirlit. Yfirlitin eru einfaldari með lágmarksupplýsingum um iðgjaldagreiðslur, inneign í séreignarsjóði og áætlaðan ellilífeyri úr samtryggingarsjóði. Á yfirlitunum er lykilorð að sjóðfélagavef með nánari upplýsingum. Sjóðfélagar eru hvattir til að fara inn á vefinn en þar geta þeir á auðveldan hátt fylgst með og metið stöðu sína.
Sjö söfn hækkuðu árið 2009 en eitt lækkaði
Sjö ávöxtunarleiðir skiluðu jákvæðri ávöxtun árið 2009 en ein var með neikvæða ávöxtun.
- Innlánasafnið hækkaði um 15,2% og Ríkissafn langt um 18,5%. Háir vextir og verðtrygging skýra góða ávöxtun safnanna.
- Samtryggingarsjóður, Ævisafn I og Ævisafn II hækkuðu um 8,6%-14,6%. Hækkun erlendra hlutabréfa og veiking krónunnar skýra hækkun safnanna.
- Sjóðurinn hefur þurft að færa niður skuldabréf innlendra banka og fyrirtækja. Afskriftirnar hafa bitnað mest á Ævisafni III sem lækkaði um 6,4% og Ævisafni IV sem stóð nánast í stað á árinu.
- Á síðustu 20 árum hafa komið tvö tímabil með neikvæðri raunávöxtun. Langtímaraunávöxtun (ávöxtun frá 1990) Ævisafns II er jákvæð um 3,8% og samtryggingarsjóðs um 4,4%.
- Hlutföll verðbréfaflokka í ævisöfnum og samtryggingarsjóði eru nokkuð frá stefnum safnanna einkum vegna gjaldeyrishaftanna.
- Hlutfall ríkistryggðra skuldabréfa, skuldabréf sveitarfélaga og innlána hefur aukist í öllum söfnum.
- Erlend verðbréf skiptast í ríkisskuldabréf, hlutabréf og framtakssjóði. Erlendu hlutabréfin vega þyngst en fjárfest er í rúmlega 1600 fyrirtækjum í mörgum löndum og atvinnugreinum.
Smellið hér til að lesa meira um ávöxtun árið 2009 og eignasamsetningu í árslok.
Árið 2010 fer vel af stað
Ávöxtun það sem af er ári hefur verið ágæt í öllum söfnum. Hækkun á gengi safna Almenna lífeyrissjóðsins frá áramótum er á bilinu 1,0% til 2,0%. Ríkissafn langt hefur hækkað mest.
Hér að neðan er tafla sem sýnir hækkun allra safna lífeyrissjóðsins frá áramótum til 12. mars 2010:
|
Ævisafn I |
Ævisafn II |
Ævisafn III |
Ævisafn IV |
Innlánasafn |
Ríkissafn - Langt |
Ríkissafn - Stutt |
|
1,0% |
1,2% |
1,3% |
1,5% |
1,5% |
2,0% |
1,4% |
Ágæt ávöxtun hefur verið á ríkisskuldabréfum það sem af er ári og hefur það skilað hækkun inn í öll blönduð verðbréfasöfn sjóðsins og Ríkissöfnin. Hækkun er á erlendum hlutabréfum frá áramótum, þó að árið hafi farið illa af stað á erlendum mörkuðum þá varð viðsnúningur þar í febrúar. Töluverðar sveiflur hafa verið á mörkuðum bæði erlendis og hér heima og búast má við því að svo verði áfram.
<<Til baka