08.04.2010
Frá stjórn Almenna lífeyrissjóðsins
Á sjóðfélagafundi 29. október 2009 lagði Andrés Magnússon fram tillögu um athugun á fjármunum stjórnarmanna sem voru tilnefndir af Glitni banka í stjórnar sjóðsins á tímabilinu mars 2007 til október 2008.
Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins ákvað að leita til Andra Árnasonar hrl. um álit og ráðgjöf í þessu máli. Andri hefur skilað minnisblaði til stjórnarinnar þar sem hann kemst m.a. að þeirri niðurstöðu að stjórninni sé ekki heimilt að krefjast þess að stjórnarmenn veiti upplýsingar um persónuleg fjármál með þeim hætti sem Andrés óskar eftir né sé stjórninni heimilt að óska eftir rannsókn nema sérstakt tilefni sé til. Stjórnin telur ekki að slíkt tilefni sé til staðar.
Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins hefur sent álit Andra til Andrésar Magnússonar og tilkynnt honum að málinu sé lokið hálfu stjórnarinnar.
Minnisblað Andra Árnasonar hrl.
<<Til baka