09.04.2010
Lífeyrissjóðir læra af reynslunni
Nefnd, sem Landssamtök lífeyrissjóða skipuðu í maí 2009 til að fjalla um hvað „lífeyrissjóðir gætu lært af þeim fjárhagslegu áföllum sem dunið hafa yfir íslenskt þjóðfélag, allt frá hruni viðskiptabankanna þriggja í byrjun október 2008“, leggur til breytingar á viðskiptaháttum á verðbréfamarkaði, regluverki og starfsumhverfi lífeyrissjóða. Nefndin kynnti skýrslu sína, Lærdóm lífeyrissjóða af hruninu 2008-2009, á fundi á Grand hóteli í Reykjavík fimmtudaginn 8. apríl 2010.
Nefndin telur að lífeyrissjóðir eigi að gera strangari kröfur til útgefenda verðbréfa, miðlara, kauphallar og eignastýringaraðila og gæta hagsmuna sinna með virkari og fjölbreyttari hætti hér eftir en hingað til, með því meðal annars að
- herða ákvæði skilmála verðbréfa og fjármálagerninga til að verja rétt og stöðu lífeyrissjóða þegar kaup eiga sér stað.
- knýja á um tafarlausa skráningu verðbréfa og aukna upplýsingamiðlun í kauphöll um útgefendur, umfang viðskipta og eðli þeirra.
- stuðla að bættum stjórnarháttum í fyrirtækjum og að standa vörð um hagsmuni smárra hluthafa.
Lagt er til að lífeyrissjóðir auki samstarf og sameiginlegt frumkvæði á vettvangi Landssamtaka lífeyrissjóða til að knýja á um úrbætur á öðrum sviðum fjármagnsmarkaðar og efnahagslífs og birta Alþingi, ráðuneytum, eftirlitsstofnunum og kauphöll tillögur sínar um úrbætur, sem meðal annars byggjast á árangursríkum viðskiptavenjum erlendis.
Helga Indriðadóttir, sjóðstjóri Almenna lífeyrissjóðsins sat í nefndinni. Aðrir í nefndinni voru Stefán Halldórsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs verkfræðinga, formaður, Baldur Vilhjálmsson, forstöðumaður eignastýringar hjá LSR, Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Stafa lífeyrissjóðs og Tryggvi Tryggvason, forstöðumaður eignastýringar hjá Gildi lífeyrissjóði. Með þeim starfaði Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða.
<<Til baka