Beint í leiðarkerfi

Frétt

09.04.2010

Ársfundur 2010

Ársfundur Almenna lífeyrissjóðsins árið 2010 verður haldinn fimmtudaginn 29. apríl 2010 á Grand hótel Reykjavík kl. 17:15.

Dagskrá.
1. Skýrsla stjórnar.
2. Ársreikningur 2009 og tryggingafræðilega athugun á fjárhag samtryggingarsjóðs.
3. Skýrsla endurskoðunarnefndar
4. Kynning á fjárfestingarstefnu Almenna lífeyrissjóðsins.
5. Tillögur um breytingar á samþykktum. Tillögurnar má lesa hér.
6. Kosning stjórnar.
7. Kosning endurskoðenda eða endurskoðunarfélags.
8. Ákvörðun um laun stjórnar.
9. Önnur mál.

Vakin er athygli á því að framboðum til stjórnar (aðalmenn) skal skila viku fyrir ársfund sjóðsins. Framboðsfrestur til stjórnar rennur út þann 22. apríl 2010 kl. 24:00. Hægt er að senda inn framboð á netfangið almenni@almenni.is.

Á ársfundinum skal kjósa tvo aðalmenn og einn varamann í stjórn til þriggja ára. Á fundinum lýkur kjörtímabili eftirtalinna stjórnarmanna:
Aðalmenn: 
Björn Arnar Magnússon, var kosinn á ársfundi 2007.
Oddur Ingimarsson, var kosinn á ársfundi 2009.
Rannveig Einarsdóttir, var kosin á ársfundi 2007.
Varamenn:
Jón Óli Ólafsson, var kosinn á ársfundi 2009.
Þorkell Erlingsson, var kosinn á ársfundi 2007.

Björn Arnar, Oddur og Rannveig gefa kost á sér áfram sem aðalmenn. Jón Óli Ólafsson, gefur kost á sér sem varamaður.

Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.
Stjórn Almenna lífeyrissjóðsins.

Ársreikningur 2009

Almenni lífeyrissjóðurinn hefur birt ársreikning sjóðsins fyrir árið 2009. Helstu atriði í reikningnum eru eftirfarandi:

  • Heildareignir Almenna lífeyrissjóðsins voru 91,4 milljarðar í árslok 2009 og stækkaði sjóður­inn um 7,7 milljarða eða um 9,3% á árinu.
  • Iðgjöld til sjóðsins voru samtals 7,5 milljarðar og lækkuðu um 15% frá fyrra ári. Iðgjöldin skiptust í lágmarksiðgjöld 4,4 milljarða og viðbótariðgjöld 3,1 milljarð. 
  • Sjóðfélagar í árslok voru 31.700 og fjölgaði um 4% á árinu. 
  • Innlánasafnið hækkaði um 15,2% á árinu og Ríkissafn langt um 18,5% frá stofnun safnsins í mars til ársloka. Háir vextir og verð­trygging skýra góða ávöxtun safnanna. 
  • Samtryggingarsjóður, Ævisafn I og Ævisafn II hækkuðu um 8,6%-14,6%. Hækkun erlendra hlutabréfa, veiking krónunnar og góð ávöxtun ríkisskuldabréfa skýra hækkun safnanna.
  • Sjóður­inn hefur þurft að færa niður skuldabréf innlendra banka og fyrirtækja. Afskriftirnar hafa bitnað mest á Ævisafni III sem lækkaði um 6,4% og Ævisafni IV sem stóð nánast í stað á árinu. 
  • Óvissa er um uppgjör gjaldeyrisvarnarsamninga sem gerðir voru árið 2008. Almenni lífeyrissjóðurinn hefur metið samningana miðað við verstu mögulegu niðurstöðu og gjaldfært þá ásamt dráttarvöxtum. 
  • Rekstrarkostnaður sjóðsins hækkar nokkuð milli ára við það að hefja sjálfstæðan rekstur. Í staðinn lækkar eignastýringarkostnaður sem sjóðurinn greiddi áður í formi umsjónarlauna verðbréfasjóða. 
  • Niðurstaða tryggingafræðilegrar úttektar sýnir að samtryggingarsjóður á ekki fyrir skuldbindingum. Stjórn sjóðsins leggur til að réttindi í samtryggingarsjóði verði skert um 16,7% á ársfundi. Eftir þá breytingu verða áunnar skuldbindingar 7,4% umfram eignir og heildarskuldbindingar 1,7 umfram heildareignir.

Nánari upplýsingar um rekstur og afkomu sjóðsins verða veittar á ársfundi sjóðsins sem verður haldinn fimmtudag 29. apríl kl. 17:15 á Grand hótel Reykjavík.


<<Til baka